Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
25.05 2009 - 113 ummæli »

Gráa svæðið minnkar

Ég held það séu talsverðar líkur á að Gunnar Birgisson segi af sér í næstu viku eða þarnæstu.

Eins og ágætur maður sem ég talaði við orðaði það – gráa svæðið á Íslandi hefur dregist saman. Það er minna svigrúm fyrir einkennilega stjórnarhætti.

Jafnvel þótt Gunnar virðist hafa gott tak á framsóknarmanninum sem er forseti bæjarstjórnar.

Munum að það eru ekki nema nokkur ár síðan valdamesti maður Íslands setti lítt menntaðan og reynslulítinn frænda sinn í Hæstarétt.

Þetta voru skrítnir tímar. Gæti þetta gerst núna?

113 ummæli

Rita ummæli

Haukur Kristinsson
25.05 2009 kl.12:39

25.05.2009
Vanhæfir flokksmenn
Líklega óþarfi að vekja athygli á skrifum Jónasar, mest lesna bloggara landins. En ég ger það nú samt.

Jónas. 25.5.09
Berum saman landsfund Sjálfstæðisflokksins og flokksfundinn í Kópavogi. Á báðum stöðum var algerlega vanhæfum mönnum fagnað sem frelsurum. Á landsfundinum var það Davíð Oddsson, sem í fíflaskap brenndi 350 milljarða í Seðlabankanum. Á Kópavogsfundinum var það Gunnar Birgisson, sem gerir engan mun á fé Kópavogs og sínu fé. Hinn dæmigerði kjósandi flokksins er Gunnar Þorsteinsson í Krossinum, sem sagði um dótturfélagið, að fjölskyldum bæri að standa saman. Það eru ekki bara forustumenn hins áttræða flokks, sem hafa reynzt vanhæfir. Almennir flokksmenn eru líka vanhæfir sem kjósendur.

Tryggvi
25.05 2009 kl.12:40

er ekki verið að setja höfunda keningastefnunnar yfir seðlabankann?

Comon
25.05 2009 kl.12:42

Nei.

GHG
25.05 2009 kl.12:55

Vonandi lærum við það af þessu hruni að það á ekki að umbera spillingu eins og hún grasseraði á tíma útrásarinnar og ALLIR voru til sölu.

Guðrún
25.05 2009 kl.12:58

Svona hafa nú kaupin gerst á eyrinni um ómuna tíð á Íslandi. Þau eru enn að gerast og munu halda áfram að gerast á þennan hátt.
‘islendingar kannast margir ekki við orðin hlutleysi/ siðferði/ réttlæti / jafnrétti.
Þetta kemur bara ekkert á óvart og ég á ekki von á því að þetta lagist nokkurn skapaðan hlut hjá þessari litlu þjóð þar sem allri eru skyldir eða þá tengdir eða bara vinur vinar.

GG
25.05 2009 kl.13:05

Held að svona hegðun sé bara alls ekkert bundin við Íslendinga, sjá t.d. nýleg dæmi frá Bretlandi. Hef sjálfur búið erlendis undanfarin 6 ár og reglulega dúkka upp svona mál út um alla Evrópu, hvort sem það er í litlu bæjarfélagi í Þýskalandi (þar sem jú allir eru líka tengdir og vinir vina sinni) eða í stórborgum Ítalíu, Frakklands eða Spánar (þar sem allir eru líka tengdir einhverjum og vinir vina sinna). Haldið þið virkilega að svona uppákomur séu bundnar við litla Ísland??? Það er bara þannig að þegar fólk kemst til valda eru alltaf einhverjir svartir sauðir sem kunna ekki að höndla völd.

Ekki ætla ég samt að fara að bera hönd fyrir höfuð þeirra tveggja sem Egill nefnir hérna að ofan, Kóngurinn í Kópavogi hefði fyrir mitt leyti mátt hverfa af vettvangi stjórnmálanna fyrir lifandi löngu síðan…

Gústaf Hannibal
25.05 2009 kl.13:06

Það er óþarfi og ýkjur að segja að maðurinn hafi verið lítið menntaður. Það er hreinlega ekki rétt.

Ætli hann sé ekki jafn menntaður og allir hinir dómararnir.

En reynslulítill var hann og ráðningin alveg hreint fáránleg og “meikaði” í raun og veru ekkert “sens” nema í ljósi þess að maðurinn var frændi Davíðs, það er rétt.

Sigurður
25.05 2009 kl.13:11

Hvers vegna ætti hann að segja af sér??

Hefur eitthvað breyst?

Borgarahreyfingin (sem ég reyndar kaus) logar núna í ílldeilum, nokkrum dögum eftir að vera komin á spenann.

Framkvæmdastjóri flokksins vill miljón í laun á mánuði, og kosningastjórinn lagði fram reikning upp á 7,7miljónir, eða um 12þúsund á tímann.
(hann ætlar reyndar að gefa 95% afslátt, en maður leggur ekki svona tölur fram.)
Helvítisfokkingfokk

Heiða
25.05 2009 kl.13:13

Tími Gunnars Birgissonar er liðinn, og alla þeirra sem hafa notað sína pólitísku aðstöðu til að hygla sér og sínum.

Andri
25.05 2009 kl.13:18

Við erum á leið inn í Evrópu í fleiri en einum skilningi. Nígerísk spilling verður varla liðin mikið lengur á Íslandi.

GS
25.05 2009 kl.13:21

Mér skilst að Kóðavogur sé vel rekið bæjarfélag, en viðskiptin eru á gráu svæði. Þau eru forkastanleg.

Sannast nú hið fornkveðna að sá sem aldrei gerir mistök gerir aldrei neitt.

…mér datt þetta í hug vegna lömunar ríkisstjórnarinnar djúpt inni í ESB þokunni.

Haukur
25.05 2009 kl.13:23

Þó að spilling grasserar erlendis þá er ekkert sjálfsagt að það á að vera spilling á Íslandi.
Þetta er eitt af því fáa sem er jákvætt við efnahagshrunið. Fólk vill ekki sjá svona spillingu lengur.

HG
25.05 2009 kl.13:27

Um Kópavog…

Einu sinni var sagt; “það er gott að búa í Kópavogi ”

Enn nú er sagt ” það er gott á þig að búa í Kópavogi “

Gylfi
25.05 2009 kl.13:31

Nei, gráa svæðið hefur ekki minnkað.

Það verða bara aðrir leikendur á því.

Nú er komið að þeim sem ekki hafa verið í aðstöðunni.

Landi
25.05 2009 kl.13:42

Já þetta getur gerst og mun gerast.

Hvert er flokksskírteinið hjá forstjóra FME?

zoræt
25.05 2009 kl.13:52

Gárungar segja að Kópavogur hafi breyst í þekkingarþorp.
Annars vegar eru þeir sem þekkja Gunnar Birgis og hinsvegar þeir sem þekkja hann ekki :-)

ibh
25.05 2009 kl.13:54

Egill – farðu nú að hætta þessum markvissa áróðri þínum á sjálfstæðisflokkinn og mönnum sem honum tilheyra ekki þá nema að þú komir hreint fram og segir eins og satt er “ég styð samfylkinguna og vill að Ísland gangi inn í ESB” það er allavega heiðarlegt.

Áður fyrr áttu flokkarnir sín málgögn og ekkert óeðliegt við það bara heiðarlegt. Það er ekki sanngjarnt né heiðarlegt að koma fram á fölskum forsendum. Þú ert að vinna hjá ríkinu og þarft að huga að því.

Jon B G Jonsson
25.05 2009 kl.14:04

ER ekki i lagi að bíða og sjá hvað kemur út úr endurskoðuninni á þessum viðskiptum áður en maðurinn er tekinn af lífi. Það eru merki um framheilaskemmdir þegar bloggarar sumir ausa öllu því ljótasta sem þeim dettur í hug úr brunni sínum. Þá skortir allar varnir og sjálfstjórn. Það að tilheyra siðmenntuðu samfélagi er að kunna sig í ræðu og riti.
Gunnar Birgisson hefur lyft Grettistaki fyrir Kópavog. Hann er framkvæmdamaður og mikið væri nú gott ef hans líkar væru t.d í ríkisstjórninni. Það væri þá eitthvað framkvæmt.

Are
25.05 2009 kl.14:09

Af hverju heldurðu að hann hafi þá komið með þessar yfirlýsingar á þessum fundi þarna í seinustu viku, var það ekki varnarútspilið hans, verjast vinstri mönnunum sem “ofsækja hann” og halda svo áfram þegar hann er búinn að koma vörninni frá sér.

Sannur Sjálfstæðismaður
25.05 2009 kl.14:13

Halló halló halló, í dag er tilefni til að fagna, og hugsa til framtíðar en ekki að vera velta sér upp úr einhverju smotteríi sem var gert í fyrra, Gunnar er góður Sjálfstæðismaður og í dag er Sjálfstæðisflokkurinn 80 ára. Hugsið ykkur ef þessi flokkur hefði nú aldrei verið stofnaður. Þá væri hér stór jafnaðarmanna flokkur eins og er á hinum Norðurlöndunum og við sennilega í þeirri stöðu að vera talin til þeirra ríkja sem best eru rekin í heiminum í dag. En sem betur fer þá var Sjálfstæðisflokkurinn stofnaður og við í flokknum náð því frábæra marki að hafa stjórnað íslandi samfelt í 18 ár, fyrir utan öll árin þar á undan. Árangrurinn er hreint út sagt frábær, það held ég að sé óumdeilt. Já sem betur fer var Sjálfstæðisflokkurinn stofnaður því það forðaði okkur frá því að fara Skandinavísku leiðina, þar sem allir eru jafnir. Þá er nú betra að hafa mikin mun á milli ríkra og fátækra, því ríkir láta jú alltaf eitthvað til falla handa fátækum og þá sérstaklega um jól og um aðra hátíðisdaga. Til hamingju Sjálfstæðismenn, áfram kristsmenn krossmenn, Sjálfstæðismenn erum vér…

Elfa Jóns
25.05 2009 kl.14:17

Zoræt … góður punktur :) … nema að Kópavogur hefur verið “þekkingaþorp” alla tíð Gunnars Birgissonar.

Eftir að ég flutti frá Íslandi, uppgötvaði ég að spilling er hreinlega ekki alls staðar opinberlega liðin … það er séríslenskt fyrirbæri, amk ef við miðum við siðmenntuð lönd. Auðvitað fyrirfinnst spilling víða, en ef upp kemst um slíkt kemst er tekið fast á því … nema á Íslandi.

Á Íslandi hefur þetta aldrei þótt tiltökumál, sjálfsagt að hygla sínum með annarra manna fé eða fríðindum. Menn hafa nöldrað ofan í hálsmálið á sér yfir þessu, en hefur aldrei dottið í hug að krefjast að neinn tæki afleiðingum gerða sinna.

Kristján Kristjánsson
25.05 2009 kl.14:20

Ekkert bendir til að grá svæðið hafi minnkað, þvert á móti.
En nú eru komnir kratískir leikendur á svið með Steingrím hvíslara, Ömmi á ljósum og Jóhanna í sminkinu.
Uppsetningin er mörkuð getuleysi og vanvirðingu fyrir efninu, leikararnir svo vandræðalegir og lítt gefandi að tárum tekur.

Söguþráðurinn illa uppbyggður, svo mjög að áhorfendur horfa opinmynntir á afglapanna taka flugið í flónsku og vandræðagangi.
Höfundarnir hafa greinilega verið svo uppteknir af gegnsæinu að þeir hafa algerlega sleppt innihaldinu.
Miðaverð á þessa sýningu verður að telja húsinu til skammar svo hátt sem það er, enda voru þar einungis fáeinar eftirlegukindur að horfa á herlegheitin.

Sýningin er flöt og tilþrifalítil hún fær því enga stjörnu, ekki einu sinni fyrir viðleitni.
Prógrammið mætti líka vera rismeira og Íslenskt, en útgefandinn er sagður IMF hvað sem það svo merkir annað en botnlausa depurð.

ss
25.05 2009 kl.14:23

Eg held ad tad seu talsverdar likur a ad Egill Helgason segi starfi sinu lausu i næstu eda tarnæstu viku.

Eins og agætur madur sem eg taladi vid ordadi tad – graa svædid á Islandi hefur dregist saman. Tad er minna svigrum fyrir politiska kafbata a rikisfjolmidlum.

Jafnvel tott Egill se i godu sambandi vid vini sina a Speglinum.

En munum tad samt ad tad eru ekki nema nokkur ar sidan forseti Islands asamt islenskum fjolmidlamonnum og utrasavikingum, akvadu ad teir fengju ad matreida frettirnar ofan i okkur eins og teir vildu.

Tetta voru skritnir timar, og ekki hafa teir skanad.

Arne
25.05 2009 kl.14:25

Það er enn löng leið þar til búið verði að komast fyrir vinavæðingu og minnka siðleysi. Það þarf að taka upp nýja námskrá í skólum, tekur nokkur ár, til að kenna börnum betur en verið hefur … og, strax, endurskoða alla stjórnsýslu.

Ekki Egill Helgason
25.05 2009 kl.14:34

Það er margt við skipan Ólafs Barkar að athuga.

Hins vegar er hann með meiri menntun en flestir meðdómendur hans.

Þú ættir að venja þig á að kanna staðreyndir áður en þú slærð svona staðhæfingum fram.

Þröstur
25.05 2009 kl.14:34

Það er aldeilis sem þið Sjálfstæðispakk reynið að verja Gunnar hvorttveggja í Kópavogi eða Krossinum!

Þið eruð allir siðlausir og þessvegna eruð þið í stjórnarandstöðunni í dag og verðið þar næsta áratuginn!

Gunnar þarf að fara frá! Verst að þið aumingjarnir vitið það ekki sjálfir heldur reynið að lofsyngja hann eins og þið mögulega getið!

80 ára frímúruregla! Það er XD í hnotskurn.

Egill S. Baldursson
25.05 2009 kl.14:38

Hættið þessum tilefnislausu og persónulegu árásum á Gunnar Birgisson. Ættuð að skammast ykkar, öll sömul!!

Hreggviður
25.05 2009 kl.14:51

Gunnar karl greyið er bara, eins og svo margir aðrir, kapítalisti á kostnað annarra. Hörðustu kapítalistar landsins hafa aldrei kynnst almennum vinnumarkaði og að þurfa að standa sig. Þeir hafa þess í stað fæðst inní ríkisforsjárkapítalisma, þar sem engu máli skiptir hvað né hvenær eitthvað er gert eða ekki gert.
Vill samt ekki taka af Gunnari að hann hefur tilheyrt verktakabransanum, að vísu með nokkuð “öruggum” verkefnum víðs vegar að frá vinum og vandamönnum.

Richard Ulfarsson
25.05 2009 kl.14:54

Kæri Egill

Ég held að þetta sé að mestu leyti rétt hjá þér, enn getur þú útskýrt fyrir mér hvað þú átt við með:

“Munum að það eru ekki nema nokkur ár síðan valdamesti maður Íslands setti lítt menntaðan og reynslulítinn frænda sinn í Hæstarétt”.

Er það ekki dómsmálaráðherra sem skipar í hæstarétt?

Haukur Kristinsson
25.05 2009 kl.15:13

Mikið er ég þér sammála Hreggviður. Einmitt, aldrei þurft að standa sig.

Priscilla
25.05 2009 kl.15:17

Gráa svæðið er alls ekki að minnka.

brj
25.05 2009 kl.15:25

Svæðið var aldrei grátt heldur kolsvart og við létum okkur standa á saman; allir vilja vera Gunnar Birgisson, framtakssamur, ófyrirleitinn, spilltur og efnaður. Allt í boði kjósenda. Valinn til trúnaðarstarfa fyrir þjóðina. Gunnar Birgisson og Finnur Ingólfsson eru mennirnir sem alla Íslendinga langar að vera.

Comon
25.05 2009 kl.15:49

Viðskipti dótturfélagsins orka tvímælis. Það er nóg til að þau eiga ekki rétt á sér.

Frasinn um að hún eigi ekki að líða fyrir að vera dóttir hans – er svo þreyttur að tárum tekur.

Ef dóttirin vill vera í viðskiptum við Kópavog, þegar faðir hennar ræður þar ríkjum – þá hlýtur það að kalla á útboð og verðkannanir um nánast öll verk.

En – Gunnar segir ekki af sér. Líklegra að Framsóknarmennirnir myndi meirihluta til vinstri. Gunnar hættir síðan við næstu kosningar.

Priscilla
25.05 2009 kl.15:52

Af hverju vildi Josefsson hætta?

Bankarnir (afskriftir lána, sala eigna, allt án samræmdra verklagsregla og skýrra markmiða) á grásvæði?

Miðað við ítök ríkissins hefur gráa svæðið kannski aldrei verið eins stórt og í dag?

Benedikt Sig Kristjánsson
25.05 2009 kl.15:58

Jón Daníelsson Kennari við Colimbia háskóla í USA skýr og hreinskilinn
strákur . Hann hefur getað talað hreint út vegna þess ma. ekki er hægt að
hefna sín á honum af smásálarlegum politikusum hér upp á fróni.

Hann átti aðkomu að vinnu fyrir Stjórnarráðið sem var Hardevætt.Hvað sagði
hann,jú kerfið væri fullt af vanhæfum einstaklingum það væri stór ástæða
fyrir því hversu alvarlega væri komið fyrir efnahag þjóðarinnar.

DÓTTUR félag Gunnars Birgissonar er þar engin undantekning.

Ragnar
25.05 2009 kl.16:01

@Andri (13:18)

Las ég rétt – heldur þú að við losnum við spillingu með því að ganga í Evrópusambandið til þess að losna við Gunnar Birgisson? Við losnum ekki við GB með því að ganga í ESB.
Eigum við ekki frekar að hætta bara að kjósa Gunnar (þeir sem hafa gert það hingað til), þá hverfur Gunnar af sjálfu sér. Og lögsækja, ef því er að skipta.
ESB hefur nóg með sig í spillingarmálum enda hafa endurskoðendur ESB ekki viljað skrifa undir reikninga samtakanna í mörg ár…
Lýðræði getur verið ágætt verkfæri, en það þarf auðvitað að vilja nota það.

Svalan
25.05 2009 kl.16:05

Það vantar ekki umfjöllun um málefni Gunnars í Kópavogi. Hvað með málefni í Álsaugar Friðriksdóttur í Reykjavíkurborg. Þar er hún varaborgarfulltrúi, öftust á lista eða í 14.sæti en Hanna Birna setti hana sem formann menningar- og ferðamálasviðs borgarinnar og þar með var hún tekin fram yfir fjölda kjörinna borgarfulltrúa fyrir framan s.s. Sif Sigfúsdóttur, Ragnar Sæ, Mörtu Guðjóns, Bolla Thoroddsen, Kristján og Björn Gíslason.

Fyrir utan orðið á götunni um að hún hafi veitt systur sinni styrki og fyrirtæki hennar http://www.sja.is hafi fengið mörg verkefni beint frá ríki og borg upp á tugi milljóna. Örugglega stærra dæmi en í Kópavogi.

Þetta þarf að skoða og það strax, það eru allir búnir að fá nóg af einkavæðingar- og fjölskylduklúbbi Sjálfstæðisflokksins.

Kristján
25.05 2009 kl.16:26

Farið hefur fé betra.

Ragnar
25.05 2009 kl.16:30

Þessi umræða er á óskiljanlegu plani. Það er vart hægt að segja hvort er vitlausara, pistlar Egils eða athugasemdirnar við þær.

Jú, það er rétt. Dómsmálaráðherra skipar dómara. Og ég veit ekki til þess að skyldmenni Þorsteins Pálssonar, Sólveigar Pétursdóttur eða Björns Bjarnasonar hafi setið í Hæstarétti. Ef Egill er að meina Ólaf Börk, þá er galið að kalla hann illa menntaðan og reynslulausan. Hann hafði verið dómstjóri á Suðurlandi, og var með meiri eða sambærilega menntun og aðrir hæstaréttardómarar, utan Páls Hreinssonar, sem er með doktorspróf.

Á öllum virtum fjölmiðlum um heim allan eru þáttastjórnendur vel menntaðir, vel lesnir, vel gefnir og kunna að greina kjarnann frá hisminu. Alveg frá efnahagshruninu hef ég efast um að Egill uppfylli þessar kröfur. Allt sæmilega gefið fólk, sem við flest erum, verður sjóveikt á að hlusta á umræðuna. Dregið er fram fólk sem ekkert vit hefur á umfjöllunarefninu. Og Egill hefur litlu við að bæta. Eins og þetta blog sýnir. Ég ætla að leyfa mér að spá, að Gunnar Birgisson muni ekki segja af sér næsta hálfa árið amk.

anna benkovic
25.05 2009 kl.16:32

Egill minn ….”.it is too good to be true!” (eins og maður segir á ensku)

Jóhann landlausi
25.05 2009 kl.16:49

Það vantar í umræðuna landspjöll Klæðningar í Heiðmörk og trjáflutninga í skjóli nætur, digurmæli Gunnars Birgissonar og skjálftann í Sjálfstæðisflokknum þá. Gunnar sór eignarhlut í Klæðningu af sér en falinn eignarhlutur hans (Luxemborg) mun afhjúpaður ef hinn sérstaki fær að vinna vinnuna sína. Gunnar er umhverfissóði í mörgum skilningi þess orðs.

Þá hefur lítið verið fjallað um tengsl Gunnars við Goldfinger og Krossinn.

Afspyrnuskemmtileg er þessi heilgaga vinaþrenning:

Gunnar Byrgisson, Gunnar í Krossinum og Geiri í Goldfinger! Innmúraðir gegnheilir sjálfstæðismenn.

Falangistinn
25.05 2009 kl.16:57

Kemur þessi Gunnar ekki altaf niður á lappirnar eins og Kristinn H. bróðir hans ? Þeir eru eins og kettirnir og fara sínar leiðir.

Raunsær
25.05 2009 kl.16:57

Þetta eru allt rakalausar svívirðingar á góðmennið GB sem hefur lyft grettistaki í Kópavogi.

photo
25.05 2009 kl.17:01

“Spilling er aldrei verk eins einstaklings. Hún felur alltaf í sér hóp af fólki sem er tengt saman með einni grundvallarreglu – að skiptast á greiðum. Þessi sameinaða spilling er byggð á hefðbundnu siðgæði, vel treystum vináttuböndum og tækifærum sem gefast. Það verður til þess að glæpir geta átt sér stað án refsingar. Aðaleinkenni hennar er óþolandi hroki.”

Texti tekin af síðu Láru Hönnu eftir brasilískan hugsuð http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/883463/

Anna María
25.05 2009 kl.17:21

Svalan: Já maður er orðin þreyttur á þessari sjálftöku út um allan bæ. Hvar er hægt að sjá verkefni sem Áslaugu Friðriksdóttur hefur verið úthlutað af vinum sínum í flokknum? Þessi fjölskylda er orðin ansi kostnaðarsöm.

Tómas E.
25.05 2009 kl.17:22

Egill,

síðan hvenær er meistarapróf álitið lítil menntun? Rúmlega 10 ára starfsreynsla tel ég vera þónokkuð, sérstaklega ef störfin eru eins lík og hugsast getur.
Verum málefnaleg og sanngjörn.

Umræðan um GB er þörf, alltof lengi hafa gengið gróusögur um hans framferði. Það þarf að klára þetta með faglegum hætti.

Gísli Gunnarsson
25.05 2009 kl.17:39

Reynið ekki eins og sumir eru að reyna að bera fæðingarhríðir hinnar siðavöndu Borgarahreyfingar við gamalgróinn og miklivægan hluta

Gísli Gunnarsson
25.05 2009 kl.17:46

Reyniið ekki að bera saman, eins og sumir eru að reyna að gera, fæðingarhríðir saklausrar og siðavandrar Borgarahreyfingar við aðalflokk hins hefðbundna valdakerfis á Íslandi, Sjálftsæðisflokkinn. Ég er ekki stuðningsmaður Borgarahreyfingarinnar, styð annan flokk eins og sumir lesendur á þessum vef hafa e..t.v. orðið varir við (!), en ég hrífst af mikilli þörf Borgarahreyfingarinnar fyrir gegnsæi og heiðarleg vinnubrögð.

Páll J.
25.05 2009 kl.17:48

Eins og fleiri þá vil ég nú benda á að það er svolítið vafasamt að kalla “frændann” lítt menntaðan… Er hann ekki með 6 eða 7 ára háskólanám á bakinu?

Hins vegar stórfurðulegt að skipa hann, segi það ekki.

þþ
25.05 2009 kl.18:07

Embættispróf í lögum auk meistaragráðu í Evrópurétti er auðvitað sáralítil menntun.

Sérstaklega þegar MR-dropout án háskólamenntunar lýsir þeirri skoðun.

Sigurður
25.05 2009 kl.18:10

Þetta er rétti staðurinn til að litli landsímamaðurinn komi með upplýsingarnar, þess vegna er nafnleynd nauðsynleg.

En það að XD sé eitthvað spilltari en annar flokkur er heldur mikil fullyrðing, sami skítur í sömu skál eins og dæmin hafa sýnt okkur.

Auðvita á Gunnar að hafa vit og samvisku til að taka rétta ákvörðun….eins og allir ættu að gera þegar út í pittinn er kominn (einnig Guðlaugur)

Ragnar R.
25.05 2009 kl.18:13

Er hægt að segja mönnum upp í Hæstarétti?

Er Hæstiréttur ekki allur meira og minna fullur af “vinum” og “ættingjum”??

Anna María
25.05 2009 kl.18:17

Svalan: Þú verður að tala skýrar!!!! Er þetta lið að neita grasrótinni um prófkjör? Ef svo er þá skilja þau býsna vel hvað þau eru óvinsæl. Myass að þau verði nokkurn tíman kosin aftur þetta getulausa pakk. Ef ég væri enn í þessum flokki myndi ég heimta prófkjör og eftirlitsmyndavélar og eftirlitsmenn svo þau falsi ekki niðurstöðu prófkjörisins. Ég treysti þessu liði ekki fyrir ömmu þeirra.

Nýi Dexter
25.05 2009 kl.18:19

hVERNIG GAT ÞETTA GERZT?

Einar
25.05 2009 kl.18:38

Jóhann Landlausi:

Bossinn í Goldfinger var í framboði fyrir lýðræðishreifinguna.

Hvort hann hafi verið í D einhverntíman … að þá er hann það ekki lengur.

Hvað varðar Gunnar Birgisson að þá er maðurinn augljóslega spilltur. Þú reddar ekki dóttur þinni tugmilljóna verkefnum án útboðs þegar þú ert bæjarstjóri. Það er of mikið … meira að segja þótt það sé í Kópavogi.. þar sem gott er að búa.

Einar Einars
25.05 2009 kl.18:39

Það er gott að búa í Kópavogi … en ekki alveg svona gott.

Þetta er fullgróft.

Palli
25.05 2009 kl.18:56

Gráa svæðið að minnka hvað? Meira bullið. Áttu við að spilltir stjórnarhættir hafi minnkað hér á síðustu mánuðum? Váááá, æðislegt

HG
25.05 2009 kl.18:58

þetta er allt sem segja þarf.

http://blog.eyjan.is/sigurbjorg/

hannes
25.05 2009 kl.19:00

Er Egill með stúdentspróf?

Comon
25.05 2009 kl.19:06

Gunnar hefur gert margt gott í Kópavogi.

En margt miður gott. Ekki síst í skipulagsmálum. Endalausar blokkir út um allar trissur (Blokkavogur). Þá hefur virst þurfa að fullbyggja Kópavog allan á nokkrum árum – eins og byggð leggist þar af fljótlega, en ekki eins og þar verði byggt áfram í hundruðir ára.

Svo er þessi glerturn í Smáranum eitthvað það sorglegasta á höfuðborgarsvæðinu öllu – kannski fyrir utan Eyktarturninn í Borgartúninu (þvílík skelfing!!).

Og svo átti að byggja nokkra slíka turna í viðbót í Smáranum. Sem betur fer er það líklega út af borðum – í bili a.m.k.

Skipulagsmál í Kópavogi hafa tekið of mikið mið af hagsmunum verktakanna.

Það skrifast á reikning Gunnars.

Elli
25.05 2009 kl.19:10

Gunnar Birgisson er persónugervingur síðustu 2 áratuga í stjórnmálum á Íslandi, Davíðsáratuganna eða áratuga gráu svæðanna : hrokafullur og rífur bara kjaft fram í rauðan dauðann.
Fleiri sveitarfélög eiga svona gaur, nefni bara Kristján Þór Júlíusson á Akureyri.
Þeir breyttu sér í einhverskonar einræðisherra í sínu sveitarfélagi líkt og Davíð gerði í landsmálunum.
Spillingin er flip-side foringjadýrkunar sjálfstæðismanna.

Comon
25.05 2009 kl.19:11

Æ, ekki svona rugl.

88mm
25.05 2009 kl.19:43

Kópavogur er eina bæjarfélagið sem ég veit um, sem hefur byggst upp út frá fávitahæli;)

gerber
25.05 2009 kl.19:57

88mm.
Gáfnavísitalan hækkaði á báðum stöðum þegar þú fluttir í þitt bæjarfélag.

ala
25.05 2009 kl.19:57

Sá sem skipaði Ólaf Börk í embætti hæstaréttardómara var Björn Bjarnason,var hann valdamesti maður Íslands

Ragnar
25.05 2009 kl.20:15

Það getur ýmislegt gerst núna. T.d. er helsti ráðgjafi Jóhönnu Sigurðardóttur, Steingríms J. Sigfússonar og Egils Helgasonar öldruð kona frá Frakklandi. Þar ku hún hafa verið rannsóknardómari. Hins vegar þekkir hún íslenskt réttarfar ekki neitt. Á norðurlöndunum hafa mörg stór mál sem snertu efnahagsbrot komið upp síðustu árin. Af hverju var ekki leitað af sérfræðingum þaðan. Óskiljanlegt í ljósi þess að íslensk löggjöf á þessu sviðið er byggð á dönskum, norskum og stundum sænskum rétti. Enda féll konan á prófinu um leið og hún var lent. Sagði að nú ættu útrásarvíkingarnir að vera komnir bak við lás og slá. Þetta er akkurat það mikilvægasta sem rannsakandi má ekki gera. Dæma fyrirfram.

Nei, það hafði enginn danskur lögfræðingur góð tengsl við mág (eða er það svili) Ögmunds Jónassonar. Sá maður er arkitekt. Með fullri virðingu fyrir arkitektum, þá er þeir ekki best til þess fallnir að fjalla um lög. En þessi ágæti maður er í dag aðstoðar maður Evu Joly.

Þarf að segja mörg orð um það sem getur gerst á Íslandi í dag.

Jakobína
25.05 2009 kl.20:20

Ekki gleyma Árna Sigfússyni sem er búin að selja Keflavík. Leigir síðan af vinum fyrir “sanngjarna” leigu. Bæjarstarfsemi lögð niður og þjónusta keypt af vinum osfrv.

Jakobína
25.05 2009 kl.20:22

ala heldur þú að DO hafi ekki haft puttana í ráðningu frænda síns?

Þarna var á ferðinni spillt valdaklíka og enn er á ferðinni spillt valdaklíka.

GBE
25.05 2009 kl.20:23

Eða kannski bara þarþarþarnæstu Egill minn!

Comon
25.05 2009 kl.20:24

Björn Bjarnason er, að mínu mati, einhver besti stjórnmálamaður samtímans.

Verð þó að viðurkenna að ráðningin á Ólafi sem hæstaréttardómara var umdeilanleg – svo ekki sé meira sagt.

Ráðningarferli á hæstaréttardómurum er reyndar primatívt hér á landi – en í hæstarétt hljóta að veljast þrautþjálfaðir lögmenn eða dómarar.

Ólafur var ca. 20 árum of ungur.

Símon
25.05 2009 kl.20:39

Hjá sjálfstæðismönnum er flokkurinn númer eitt,verja sína spilltu
sauði útí eitt.Skítur og drulla útum allt eftir þessi skítseiði

ala
25.05 2009 kl.21:00

Jakobína þú hefur ekki mikið álit á Birni Bjarnasyni,heldur þú að hann hafi ráði Ólaf Börk ef hann hefði ekki treyst honum

anna benkovic
25.05 2009 kl.21:02

endurtek….”Egill minn ….”.it is too good to be true!” (eins og maður segir á ensku)”

Hreggviður
25.05 2009 kl.21:13

Hér er hlaupið um víðan skoðanavöllinn, sem er gott. Gunnar dottinn út en Björn kominn í staðinn:-)
Talandi um hæstarétt, þá held ég að þar sé á garðanum alltof einlit hjörð.
Þegar hér er komið sögu í hörmungum peninga og ofstækis þeim tengdum, þá verður erfitt fyrir Hæstarétarmenn að halda hreinum lit utan við stóra dóma. Þeir eru nefnilega fáir úr mislita hópnum, sem fengu peninga að ráðskast með þegar allt var á hvínandi botni í austrinum út og suður.
Það verða frændavíg mörg og illvíg framundan, þ.e.a.s. standi Hæstiréttur sig og dæmir eins og Hæstarétti ber.

Magnús Björgvinsson
25.05 2009 kl.21:55

Var að koma af fundi hjá Samfylkingunni í Kópavogi þar sem farið var yfir þessi mál m.a.
Þar kom m.a. fram að t.d fyrir Afmælisritið var borgað 3,5 milljónir í jöfnum greiðslum fram í október 2005 þó að einu gögnin eftir vinnu Frjálsar miðlunar væri mappa með nokkrum myndum upp á 35 bls. og svona plat texti sem var koperaður 20 x til að fylla út layoutið. Fyrir þetta var greitt 311.205 í jöfnum greiðslum. Klókir menn höfðu fundið út að þetta voru 250 þúsund á mánuði + vsk. Svona var með mörg önnur verk sem Frjás miðlun vann fyrir Kópavog. Þannig má t.d. nefna að umhverfisviðurkenningar sem voru prentaðar á venjulegan pappír og í IKEA ramma sem kostar 1600 kr kostuðu bæinn frá 200 þúsundum upp í 700 þúsund 5 stikki á ári. Og sambærilegur kostnaður í Mosfellsbæ fyrir mjög svipuð plögg var um 18 þúsund.
Fullt af öðrum dæmum.
Gunnari er ekki stætt lengur held ég.
Þetta mál verður skoðað af óháðum endurskoðendum.

Comon
25.05 2009 kl.22:00

Trúi ekki orði sem kemur frá Samfylkingunni í Kópavogi um Gunnar.

Hann hefur haldið þeim frá völdum það lengi að þeir sjá Davíð í honum.

anna benkovic
25.05 2009 kl.22:09

Takk Magnús Björgvinsson…maður grunaði að þetta væri í þessum dúr?

En ég vil ekki vera í Kópavogi sem einhver “meðlimur” í sértrúarsöfnuði,……. eða “fjölskyldusöfnuði”..eins og Gunnar í Krossinum orðaði það!

Magnús Björgvinsson
25.05 2009 kl.22:13

Þú þarft ekki að trúa Samfylkingunni Comon ég skoðað á fundinum skjöl upp á tugi bls. þar sem voru mörg hundruð færslur úr bókhaldi bæjarnins um greiðslur til Frjálsar Miðlunar.
Eitt sem t.d. hafði vakið athygli bæjarfulltrúa var að nær allar kvittanir voru í númeraróð. Sem bendir til þess að þetta fyrirtæki hafi ekki rukkað inn fyrir önnur verk skv. nótum. Og færðar líkur til að það sem vantaði inn í númeraröðina væru reikningar sem Lánasjóðurinn borgaði.

Raunsær
25.05 2009 kl.22:21

Ekkert að marka þetta Samfylkingakjaftæði eru í herferð gegn Gunnari.

?
25.05 2009 kl.22:27

Comon vertu Raunsær eða öfugt

GBE
25.05 2009 kl.22:28

Úff….Hefur Samfó í Kópavogi ekkert þarfara að gera en alltaf að vera með skítkast út í GB?

Hvernig væri að einbeita sér að koma flokknum til valda af eigin verðleikum, svona í fyrsta skiptið fyrir Samfó yfir landið í heild!

Bestla í Lóni
25.05 2009 kl.22:36

AGS í Argentínu. Gott myndband á forsíðu Eyjunnar. Ótrúlega margt líkt með búsáhaldabyltingunni í Argentínu og á Íslandi. Lönd á sambærilegu þróunarstigi.

Í valddreifingu, fjármálaþroska og foringjavaldi. Auðug lönd af náttúruauðlindum en með innri spillingu og hlutirnir ekki uppi á borðinu. Bankarnir byggir á sandi og ófullkomin löggjöf um peningamál, veðhæfi og sparnað.

Löggjafinn ómarkviss, flokkadrættir og reiptog um skattpeninginn. Sama gildir í bæjar og borgarmálum, þar sem minnihlutinn ræður nánast engu, en foringjaklíkur maka krókinn

Ragnhildur
25.05 2009 kl.22:59

Gunnar Birgisson á heima á Litla Hrauni enda hefur hann stolið meira en svo að Kvíabryggja eigi lengur við.

Burt með hann strax.

Magnús Björgvinsson
25.05 2009 kl.23:00

Þú veist væntanlega GBE að Samfylkingin í Kópavogi er bæjarmálafélag og þetta var fundur með Bæjarfulltrúum. Það er þeirra verk að benda á spillingu þegar hún er augljós.Það eru aðrir sem fjalla um landsmálin. Takk fyrir !

ala
25.05 2009 kl.23:03

Fek undir með Comon Gunnar hefur haldið Samfylkingunni í Kópavogi svo lengi frá völdum að þeir sjá Davíð í honum

Comon
25.05 2009 kl.23:09

Gunnar er á hálu svelli og þunnu í þessu máli.

Rétt að bíða eftir úttekt endurskoðandans.

Það breytir því ekki að ef afkomandi bæjarstjóra vill vera í viðskiptum við bæinn – á það eingöngu að eiga sér stað í gegnum útboð.

Annað gengur ekki.

GG
25.05 2009 kl.23:49

Gunnar fór nú aðeins yfirstrikið sama hvað hver segir – ársreikningar bæjarins bera ekki saman við útgreidda reikninga er auðvitað stór alvarlegt mál bæjarfulltrúar hvort sem þeir eru í liðinu eða andstæðingar verða að takast á við svona hluti, þetta er óverjanlegt og saknæmt að hylma yfir með svona hlutum.
Vonandi verður þetta til þess að Gunnar og hans líkar sem þrifist hafa á okkur almúganum skrifað 50. þús. hér og 100. þús. þar teknir og úthýst úr íslenskri pólitík – “þökk sé kreppunni”

GBE
26.05 2009 kl.00:07

Magnús minn: Hvað kemur þetta landsmálunum við? Hitti ég á viðkvæma strengi?

Einar
26.05 2009 kl.00:20

Árni Johnsen fór jú á Kvíabryggju fyrir að nota almannafé í sína þágu. Mjög eðlilegt, það sem er óeðliegt er að hann er kominn aftur á þing. Enn ein spillingin í boði Sjálfstæðisflokksins.

En jæja.. Gunnar Birgisson fer ekkert ósvipað að þessu, nema að hann setur tugmilljónir af skattfé bæjarins inn í fyrirtæki dóttur sinnar.. fyrir ýmis “verkefni” .. eins og að prenta út A4 blöð með texta, en eflaust í litaprentara þó…spurning hvort hún hafi sjálf keypt rammann í IKEA…

Í stað þess að líta þetta sömu augum eða allavega svipuðum augum og brot flokkbróðursins Árna Johnsen … að þá eru þetta árásir frá Samfylkingunni á aumingja Gunnar og dótturfyrirtækið.

Þetta er eins og lélegur brandari … eins og flest sem komið hefur frá Sjálfstæðisflokknum að undanförnu.
..og þeir sem verja þessar gjörðir … ættu að skoða þetta eitthvað betur. Þetta er óverjandi spilling..

Ólafur Sveinn Haraldsson
26.05 2009 kl.00:47

Sammála Elfu Jóns, eftir maður flutti út þá sér maður að opinber spilling er ekki liðin annars staðar en á Íslandi. Séríslenskt þetta umburðarlyndi sem við höfum fyrir íslenskum stjórnmálamönnum.

Spurning út í bloggheiminn..er innri endurskoðun Kópavogs að fara finna eitthvað grunsamlegt gegn bæjarstjóranum sínum? Gaman verður að sjá samanburð frá innri endurskoðun Kópavogs og Ríkisendurskoðunar. Það síðarnefnda er að fara yfir mál vegna verkefna sem Gunnar útvegaði dóttur sinni vegna LÍN.

Friðjón
26.05 2009 kl.01:35

Þetta er ekki grátt svæði…

Kommentin sýna vel að nausynlegt var að setja reglu sem sett var fyrir 16 árum síðan í Stjórnsýslulögum nr. 37 ( frá 1993) sem segja að ekki má semja við syskini, konu sína eða börn (Sjá 1 og 3 grein). http://www.althingi.is/lagas/nuna/1993037.html

Heldað allir lögfræðingar viti þetta… líka þeir FLESTIR sem eru í XD.

S.Á.
26.05 2009 kl.07:42

Undarlegt að Sjálfstæðisflokkurin skuli ekki reka Gunnar úr Flokknum. Það að hafa Gunnar í Krossinum sem sinn helsta talsmann ætti að vera ávísun á spillingu og næg ástæða til að reka hann úr Flokknum. Nema þetta sé bara alvanalegt í Flokknum. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hagaði sér með svipuðum hætti og Gunnar Birgisson gerir nú í Kópavogi eftir samfelld yfirráð yfir Reykjavík í meira en hálfa öld. Þar þurftu menn m.a.s. um langt árabil að vera í Flokknum til að fá lóð undir íbúðarhús. Og gælufyrirtæki Flokksins (t.d. Ármannsfell) fengu úrvalslóðir á silfurfati.

Gummi
26.05 2009 kl.10:48

Það er bannað með lögum að semja við konuna sína – af hverju ekki dóttir… ? Hvað er Kópavogur að hugsa

Sjáiði hér… þessi forstjóri var rekin:

http://www.fjarmalaraduneyti.is/rikisstarfsmenn/rettarheimildir/nefnd/alitsgerdir/nr/789:

6.3. Um launagreiðslur til eiginkonu forstöðumanns Þjóðmenningarhússins.
Nefndin telur athugasemdir Ríkisendurskoðunar vegna ráðningarsamnings sem A gerði við eiginkonu sína og launagreiðslur til hennar á grundvelli þess samnings réttmætar. Er það mat nefndarinnar að með þessari háttsemi hafi A sýnt af sér dómgreindarleysi og brotið gegn hæfisreglum stjórnsýslulaga, sbr. 2. tölul. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 2. mgr. 5. gr. laganna enda eigi ákvæði 2. mgr. 3. gr. laganna ekki við um þessi tilvik. A hefur fallist á að störf maka af þessu tagi skapi óþægileg úrlausnarefni. Nefndin telur að skýringar hans um að hann hafi treyst eiginkonu sinni betur en nokkrum öðrum til að vinna umrædd verkefni séu ekki ásættanlegar. Þar á ofan leiddi athugun Ríkisendurskoðunar í ljós að eiginkonan fékk greidd full laun auk eftirvinnu samkvæmt samningnum allan ráðningartímann, alls 1.510.848 kr., þrátt fyrir veikindaforföll hennar stóran hluta hans. Engin skráning liggur þó fyrir um fjarvistir vegna veikinda eða yfirleitt um viðveru hennar á vinnustað á ráðningartímanum. Í ljósi stutts starfstíma hennar við stofnunina er ljóst að réttur hennar til launa vegna veikinda var mjög takmarkaður og virðist ljóst að eiginkonunni hafi verið greidd laun langt umfram þann rétt sem hún átti. Auk þess var A vanhæfur, líkt og í öllum atriðum varðandi þetta ráðningarsamband til þess að taka matskenndar ákvarðanir um sveigjanlegan vinnutíma hennar, viðveru á föstum vinnustað og starfsskyldur.

Í málinu er einnig upplýst að eiginkonan var ráðin til starfa án undangenginnar auglýsinga. Brýtur það gegn 7. gr. starfsmannalaga og reglum um auglýsingar á lausum störfum nr. 464/1996. Ekki er fallist á skýringar A um að um afleysingastarf hafi verið að ræða sem sé undanþegið skyldu til að auglýsa, sbr. 2. tölul. 2. gr. reglna nr. 464/1996, þar sem fyrir liggur að ekki var verið að leysa neinn starfsmann af.

6.4. Um verktakagreiðslur Þjóðmenningarhúss vegna verktöku eiginkonu.
Ríkisendurskoðun telur svipuð sjónarmið eiga hér við og í lið 3 að framan varðandi vanhæfi A til að greiða eiginkonu sinni 128.000 kr. fyrir verktakavinnu árið 2001 og 108.000 fyrir verktakavinnu árið 2000. Nefndin telur þessar ávirðingar nægilega leiddar í ljós og að ekki sé hald í þeim skýringum A að um óveruleg verkefni hafi verið að ræða og að eiginkona hans hafi getað sinnt þeim betur, fljótar og ódýrar en annar starfsmaður. Með kaupum A á sérfræðiþjónustu eiginkonu sinnar braut hann gegn fyrrgreindum hæfisreglum stjórnsýslulaga, en samkvæmt 3. mgr. 1. gr. laganna gilda ákvæði II. kafla þeirra einnig um gerð samninga einkaréttarlegs eðlis.

K.S.
26.05 2009 kl.11:29

Ólafur Börkur Þorvaldsson er heiðarlegur og góður maður með mikla reynslu sem dómari og meiri menntun en margir dómarar í Hæstarétti. Þekking hans í Evrópurétti ætti einnig einmitt að vera kærkomin nú á þessum tímum. Ég er þess fullviss að dómsvaldinu er vel borgið í höndum hans. Hefur einhver kynnt sér störf þessa manns?

Bessi
26.05 2009 kl.12:27

Það þarf að koma upp heimasíðu þar sem almenningur getur bent á spillta embættismenn og hvernig þeir hafa misnotað aðstöðu sína.

Sjálfstæðismenn hafa verið duglegir við að setja í valdastöður vesalinga sem eru í raun að fá starf í staðinn fyrir sjáfboðavinnu fyrir Flokkinn, þetta er oft fólk sem fær ekki gott starf öðruvísi og það er stórskaðlegt fyrir þjóðfélagið.

GEG
26.05 2009 kl.12:39

Eru ekki lög um þetta?

Ragnar
26.05 2009 kl.12:41

Almenningur má ekki láta hjá líða, að benda á spillingu, í einkageira og hinu opinbera…. með því að benda fjölmiðlum á það, tala á bloggsíðum, eða kæra, hringja og vera með fyrirspurnir.

Ef hver og einn reitir arfann í kringum sig, þá breytist samfélagið.

Ef almenningur aðeins vildi greina frá því sem hann veit, mætti fylla margar forsíður dagblaða.

Er ekki nóg komið af þöggun og þrælslund?

Halldór Blö
26.05 2009 kl.13:40

Dr. Gunnar hefur aldrei vitað mun á réttu eða röngu, og sýna það best hinir fjölmörgu dómar og stjórnsýsluákærur er fallið hafa um stjórnsýslu hans. Hann hgfur samt haft vit a að setja dúsur upp í andstæðing sína í pólitík og tryggt kjör´rétt aðila í prófkjöri Framsóknar.

Í Kópavogi eru landsins flestar benzínstöðvar, og skyldi það meðal annars stafa af að Klæðningu gekk illa gera upp olíuskuldir sínar við Olíufélögin, og þurftu þau stundum að afskifa milljónatugi. Æ skal gjöf til gjalda. Það er næsta ótrúlegt að aldrei hafi farið framm opinber rannsókn á samspili Klæðingar og Olíufélaganna í úthlutun á loðum f. benzínstöðvar.

Kaupinn á hesthúsunum hefði ein og sér nægt til að Dr. Gunnar hefði verið vikið úr stóli bæjarstjóra.

K.S.
26.05 2009 kl.14:02

Ólafur Börkur Þorvaldsson er heiðarlegur og góður maður með mikla reynslu sem dómari og meiri menntun en margir dómarar í Hæstarétti. Þekking hans í Evrópurétti ætti einmitt að vera kærkomin nú á þessum tímum

Ég er þess fullviss að dómsvaldinu er vel borgið í höndum hans. Hefur einhver kynnt sér störf þessa manns?

Snoddi
26.05 2009 kl.14:21

Gæti ekki verið meira sammála. DO glansmyndin mun vonandi aldrey aftur skína meðan land byggist!!!!

Þakkir enn og aftur fyrir gott Silfur í vetur og að hafa staðið vaktina og reynt að greiða úr spillingarfeninu.

Gísli Gunnarsson
26.05 2009 kl.18:45

Ég las öll ummælin hér. Það er merkileg reynsla. Þeim má skipta í tvennt. Gagnrýni á Gunnar Birgisson og þeir sem afgrei’ða málið með því að hér séu pólitískir andstæðingar hans að reyna að fella hann saklausan. Síðarnefndi hópurinn beitir aldrei efnislegum rökum en atar gagnrýnendur Gunnars svívirðingum.

Að telja sig ekki þurfa að beita rökum er merki um gamalgróinn hroka stuðningmanna ótvíræðs valdaflokks. Sjálfstæðisflokkurinn mun aldrei ná sér á strik aftur nema hann láti af persónusvívirðingum í stað rökræðu.

Gunnar Freyr Hilmarsson
26.05 2009 kl.19:29

Og fallegasti Fasista marbendillinn er …….

Hreggviður
27.05 2009 kl.00:45

Gísli Gunnarsson, og hvorum hópnum tilheyri ég?

Balzac
27.05 2009 kl.07:25

K.S. ,,Ólafur Börkur Þorvaldsson er heiðarlegur og góður maður með mikla reynslu sem dómari …”

Hvað kemur það málinu við?

K.S. skilur ekki prinsip.

K.S.
27.05 2009 kl.12:39

Balzac

Hvað prinsip skil ég ekki?
Er það prinsipið “Hæfur og heiðarlegur maður getur ekki orðið dómari ef hann er skyldur forsætisráðherra”?

Raunsær
27.05 2009 kl.18:21

Gunnar Birgisson er heiðvirður og heiðarlegur maður og er Samfylkinginn í herferð gegn honum vegna öfundar.

Gísli Gunnarsson
27.05 2009 kl.18:52

Þú ruglar aðallega, Hreggviður minn, sbr. ádeilu þína á hæstarétt. Slíkt er eiginlega utan við hægri-vinstri kvarðann.

Ólafur
28.05 2009 kl.17:24

HAHAHA

Það er alveg magnað að menn séu hér að verja þennan mann. Hann hefur alla sína tíð verið að moka undir rassinn á sjálfum sér. Framsókn og Sjálfstæðisflokkur og flestir íslendingar sem þekkja til hans hafa vita þetta og það er ekkert nýtt að koma í ljós þarna. Það eina sem er breytt er nýtilkomið óþol íslendinga við spillingu.

Endilega kynnið ykkur hverning fyrirtækjarekstri Gunnars var hagaði áður en hann varð bæjarstjóri í aðstöðunni sem hann er í í dag.

Endilega kynnið ykkur hvað verktakar í bænum hafa um hann að segja. Nú þegar þeir eru allir atvinnulausir þá kannski kemur eitthvað í ljós….

30% af varnarræðum hér að ofan eru eflaust hann og fjölskyldan að verja sig.

Það eina sem Samfylkingin þarna í bæ er sek um er að hafa ekki haft manndóm til að gera áður það sem Guðríður Arnardóttir er nú að gera.

Takk kærlega Guðríður.

Adda
28.05 2009 kl.17:26

Kópavogsbúar ættu að gera byltingu og reka Gunnar og spillingarpésa hans frá völdum, ef þeir segja ekki af sér.

Það mætti byrja á turninum Smáratorgi.

Warburg
28.05 2009 kl.18:09

Það er gott að búa Kópavogi

Raunsær
28.05 2009 kl.20:35

Kjaftæði í Samfylkingunni Gunnar er framkvæmdamaður sem lætur verkin tala.

Hreggviður
28.05 2009 kl.23:07

Hvernig á annað að vera en að maður rugli Gísli minn, þetta er allt saman tóm endaleysa.
Hæstiréttur hefur ekki sýnt af sér sérstaka röggsemi í dómum á auðrónum, sem komi hafa af “misgáningi” til álita þar. Ég tel að lítil breyting verði á því, enda kanske til of mikils ætlast að svo verði.

Gísli Gunnarsson
30.05 2009 kl.02:09

Þú segir nokkuð, ágæti Hreggviður. Það er flest ruglað núna!

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

 


Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar