Það skal ekki mælt með því að neinn ljúgi.
Sumar lygar eru reyndar svo flóknar eða vandlega úthugsaðar að þær komast aldrei upp.
Það er nóg af þeim. Við erum umkringd slíkum lygum.
Svo eru kjánalegar lygar sem komast upp hérumbil undireins.
Við höfum haft nokkur mjög áberandi dæmi um þetta í vetur.
Til dæmis þegar Tryggvi Jónsson, þáverandi starfsmaður Landsbankans, sagðist ekki hafa komið nálægt Baugi um langt árabil.
Nokkrum dögum síðar hvarf Tryggvi frá Landsbankanum. Það var ekki vegna þess að bankastjórninni þætti óeðlilegt að hann starfaði þar – þvert á móti – heldur vegna þess að upp komst um ósannindi hans í fjölmiðlum.
Nú erum við með svipað dæmi um lögfræðistofuna Logos og störf hennar fyrir Baug. Á föstudaginn fór talsmaður stofunnar á svig við sannleikann. Á mánudegi er þetta rekið ofan í hann í fjölmiðlum.
Spurning hvort einhver láti sér detta í hug að lögmenn hjá Logos geti haldið áfram að vera skiptastjórar í þrotabúi Baugs eftir þetta.
Varla.
Svo er spurning hversu mörg fjöldaframleidd skúffufyrirtæki hafa orðið til á Logos og sambærilegum lögfræðistofum.
Meðal annars til þess –
„að losna við opinbera skráningu á raunverulegum stofnendum félagsins, þar sem stofnendur og núverandi stjórnarmenn eru einu upplýsingarnar sem hlutafélagaskrá birtir“.
Þettað er rétt hjá þér Egill það gengur ekki að skiptasjóri komi frá lögfræðistofuinni Logos
Yfir hvaða skít á að fara að moka núna.
Að setja lögmenn Logos sem bústjóra yfir Baug er eins og að skipa Lalla Johns sem lögreglustjóra í Reykjavík.
Sennilegast verður Lalli fyrr talinn hæfur sem lögreglustjóri, en Lógos sem bústjórar Baugs.
Allir sæmilega gefnir til höfuðsins sjá að lögmenn Logos eru algerlega vanhæfir til að takast á við þetta verkefni.
Spurningin er hvort þeir hafa manndóm til að segja sig fár málinu strax eða hvort það þarf að hjálpa þeim til þess.
Hver tekur ákvörðun um skiptastjóra? Eru dæmi um að slík ákvörðun hafi verið afturkölluð?
Sæll Egill.
Heldurðu að Logos verði látnir hætta með gjaldþrotaskifti Baugs ?
Hverjir komu þessu á hverjir völdu þessa aðila sem voru þó í svona miklum viðskiftum við Baug ?
Sjá lög nr. 21 frá 1991. Sér í lagi XIII. kafla: Skiptastjórar.
http://www.althingi.is/lagas/136a/1991021.html
Ég held að þessi maður hljóti að teljast vanhæfur.
Það er með ólíkindum hversu samviskulaust þetta lið er og augljóslega haga sér eins og um siðleysingja er um að ræða.
Sannfærðir um að fólk er fífl, og láti traðka á siðferislegri vitund og heiðarleika sínum án þess að gera nokkuð.
Arngrímu Ísberg Baugsdómarinn var að dæma í enn einu málinu tengdum þeim beint og óbeint, því 4 á stuttum tíma og væntalega þeim einu sem hafað verið í gangi.
Hann er væntalega svo „ótrúlega heppinn“ að af 22 dómurum er hann væntalega dreginn 4 sinnum í röð úr öllum hópnum til að annast skítamálefni Baugsmafíunnar.
Tek undir þessi heilræði.
Það virðist þó vera undirliggjandi skoðun „yfirvalda“ að íslenska þjóðin geti ekki höndlað sannleikann.
Til þess sé sannleikurinn of sár.
Framkoman framan af hefur endurspeglað þessa skoðun og auk þess glittir í gegn að þeir telji fólk vera fífl.
Endurreisn efnhagslífs og virðingar hefst ekki fyrr en fólk fær sannleikann upp á borðið. Þangað til fer dýrmæt orka í að reyna að berja sannleikann út .
Best að vitna í Laxness:
„Þegar byrjað er að ljúga er vandi að fara að segja satt á eftir.“
Rakst á þennann fróðleik um Logos ofl.
http://emmogess.wordpress.com/2009/03/13/stor-bitarnir/
„Lógos er einn þessara stofa. Lógos var með skrifstofur í London og Kaupmannahöfn þar sem unnið var í þágu útrásarvíkinga, ekki síst fyrir Baug. Þar fer fremstur Gunnar Sturluson, sonur Sturlu Böðvarssonar fyrrverandi þingforseta. Gunnar er aðstoðarmaður Stoða í greiðslustöðvuninni. Fullyrt er að stofan hafi góð tengsl við stjórnsýsluna.
Jakob Möller verjandi Tryggva Jónssonar í Baugsmálinu. Hann hefur góð tengsl í stjórnsýsluna gegnum Sjálfstæðisflokkinn.
Árni Vilhjálmsson hefur annast samninga, fyrir erlenda fjárfesta, varðandi stóriðjur hér á landi. Árni er sonur Vilhjálms Árnasonar sem var aðallögmaður Íslenskra aðalverktaka. Góð tengsl í stjórnsýsluna gegnum Framsóknarflokkinn.
Othar Petersen er helsti lögmaður Íslenskra aðalverktaka. Tengdur Sjálfstæðisflokknum.“
Mér skilst að Erlendur Gíslason og Erlendur Hjaltason hjá Viðskiptaráði séu systrasynir. Ég vona að hann Hjaltason hafi ekki matað hinn fyrrnefnda af skynvillunni sinni. Annars verður erfitt að finna lögmannsstofu sem hefur ekki haft með málefni Baugs á sinni könnu.
Þess má geta að Pétur Guðmundarson sem var á Logos sat í stjórn Glitnis fyrir þessa bísa.
Geta ekki kröfuhafar kært skipan Helga I. Jónssonar dómstjóra þegar hann skipaði lögmann LOGOS sem skiptastjóra í þrotabúi Baugs þegar aðilar eru þetta tengdir???
Bæti þessu inn sem mér var sent:
varðandi Logos og skattaskjólin
þá starfar einmitt á þeirri stofu Bjarnfreður Ólafsson, einn helsti
skattalögfræðingur landsins, gott ef hann sat ekki í stjórn Kaupþings
eða gegndi trúnaðarstörfum fyrir þann banka, en sem lögfræðingur er
hann maðurinn sem kenndi mönnum að nota skattaskjólin – hann fann þau
upp á Íslandi – er mér sagt.
Jú hann sat í stjórn Kaupþings hann Bjarnfreður Ólafsson. Logos sá um að búa til eignarhaldsfélögin sem að flottirog stórir menn keyptu síðan af þeim til að ekki væri hægt að rekja slóðina til þeirra beint. Fari þetta lið til …..
Ógeðið heldur áfram. Þeir maka krókinn.
Við blæðum.
Lögfræðistofur og endurskoðendur með flott nöfn. Þau hafa rústað orðstír sínum enda reynst vera mellur auðmannanna og beinir gerendur í aðdraganda hrunsins.
Skammt er að minnast þess þegar KPMG hrökklaðist frá rannsókn fallins banka vegna óelilegra tengsla. Þeir voru þeir einu sem ekki sáu hvað þetta var sjúklegt.
Eina leiðin til að stöðva þetta er að kjósa nógu óflekkað lið. Því miður virðast bara sérframboðin vera eftir og etv VG.
Reyndar eru VG á fullu að rétta einkareknum bönkum, sem þykjast vera sparisjóðir, peningana okkar undir því fororði að hjálpa sparisjóðum.
„Sparisjóðabankinn biður ríkið ekki um eina krónu“ segir Agnar Hansson forstjóri Sparisjóðabankans. Hann vill bara láta afskrifa skuldir sem þeir geta hvort sem er ekki borgað.
Hvílíkur hroki. Maðurinn er semsagt að hóta okkur. Auðvitað á að taka þessa eign af mönnunum og bjóða bankann upp til hæstbjóðanda. Reka þessa hrokagikki og betlara svo frá.
Ef VG lætur undan þessum mönnum, þá eru bara sérframboðin eftir.
Tek undir með þér Borgari60
svo má nú ekki gleyma lyginni hjá Jóni Ásgeiri í Silfrinu þegar hann var spurður um Tortola…… þá kannaðist kapinn EKKERT við þessa eyju…..sorglegt að horfa á þetta gerast aftur og aftur og aftur…… og svo förum við bara í Bónus að versla..
Þetta er náttúrulega fáránlegt.
Ég er ekki lögfróður, en fyrir mér er þetta augljóst vanhæfi.
Samkvæmt lögum þá má engan skipa skiptastjóra sem yrði vanhæfur sem dómari í einkamáli viðkomandi aðila (sjá að neðan).
Spurning hvort Arngrímur Ísberg héraðsdómari sé að hjálpa vinum sínum í Baugi einsog hann gerði svo oft í Baugsmálinu?
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2006/04/29/jon_gerald_kaerir_urskurd_arngrims_isbergs_heradsdo/
Vek athygli á 6 grein.
“
XIII. kafli. Skiptastjórar.
75. gr. Þegar héraðsdómari hefur kveðið upp úrskurð um að bú sé tekið til gjaldþrotaskipta skipar hann skiptastjóra til að fara með skiptin með bókun í þingbók. Sé krafa um gjaldþrotaskipti fyrst tekin til greina fyrir æðra dómi skipar héraðsdómari skiptastjóra svo fljótt sem þau úrslit verða honum kunn.
Engan má skipa í starf skiptastjóra nema hann lýsi sig fúsan til að taka starfann að sér og:
1. sé orðinn 25 ára gamall,
2. sé lögráða og hafi ekki misst forræði á búi sínu,
3. sé svo á sig kominn andlega og líkamlega að hann geti gegnt starfanum,
4. hafi ekki orðið sannur að refsiverðu athæfi sem verður talið svívirðilegt að almenningsáliti eða athæfi sem gerir hann óverðugan nauðsynlegs trausts til að geta gegnt starfanum,
5. hafi lokið embættisprófi í lögum,
6. yrði ekki vanhæfur sem dómari í einkamáli sem þrotamaðurinn eða sá sem á kröfu á hendur þrotabúinu ætti aðild að eða, ef félag eða stofnun er til gjaldþrotaskipta, í einkamáli sem stjórnarmenn eða starfsmenn sem hafa haft daglega stjórn félagsins eða stofnunarinnar með höndum ættu aðild að.”
http://www.althingi.is/lagas/136a/1991021.html
Held að það er nokkuð ljóst að krabbameinið, spillingin er komin á ólæknanlegt stig og sjúklingurinn land og þjóð komin á líknardeild.
Hver verslar í Bónus? Ég verð að ræða það við frú Helgu . . . . .
. . . það gengur auðvitað ekki. . .
Veit ekki hvort þetta hefur komi fram?
Hjá Logos starfar bróðursonur Gests Jónssonar hrl og Baugslögmann No.1, að nafni Jón Skaftason.
Félag í eigu Logos, Unity Investments ehf, er með skráð heimili og varnarþing að Túngötu 6, eitt tuga ef ekki hundruða fyrirtækja undir þaki Baugs.
Sjálfsagt er þetta bara viðbót við annað sem lögfræðiklækir getað náð yfir af því að aldrei var spurt beint og nákvæmlega um þessa liði sem og hina sem hafað uppgvötast um vænhæfi Logos varðandi málefni Baugs.
Sá sem skipaði þessa Logos aðila á að segja af sér eða verða sagt upp strax vegna óheiðarleika eða og heimsku.
Helvítis fokking fokk !!!!!! Ég er brjálaður
„Í viðtali við Morgunblaðið þann 7. nóvember sl. sagði Gunnar Viðar, forstöðumaður lögfræðisviðs Landsbankans, að Tryggvi kæmi hvergi nálægt málum sem tengjast Baugi, 365, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni eða félögum sem tengjast honum. Deildin sem hann starfaði í sinnti ekki stærri málum og málefni Baugs teldust ótvírætt til stærri mála.“
Eftir því sem ég best veit er Gunnar Viðar enn í sama starfinu hjá Landsbankanum. Er ásættanlegt að menn sem ljúga upp í opið geðið á þjóðinni þurfi ekkert að svara fyrir það. Hvað veldur ?
það þarf að fara að nota sopranoaferðir a baug
Sigrún. Nei. Það er fullkomlega út í hött að maðurinn hafi ekki verið látinn fara samstundis og móðgun við þjóðina, eða þann hluta sem hefur ennþá óbrenglaða siðferðiskennd.
Að vísu held ég að skiptastjóri geti ekkert gert nema með samþykki kröfuhafa
og hann á að halda fundi reglulega með þeim og engar sölur fara fram nema með þeirra samþykki. Hitt er annað, kannski er þetta bara plott. Baugur gjaldþrota að kröfu Glitnis, svo er skipaður skiptastjóri ( fyrrum lögmaður Baugs en einhverra hluta vegna hafði birst frétt um það á Orði götunnar, TVEIM DÖGUM
ÁÐUR en Héraðsdómari skipaði Erlend en það er svona eins og frétt um dómsorð áður en dómur er kveðinn upp ( sic ) ). Svo er hægt að afskrifa með því að ´´ selja´´ Jóni og Co ýmsar eignir úr gamla Baugi. Allt lítur vel út á yfirborðinu og á fréttasíðum en Glitnir tapar og Jón heldur einhverju skuldlaust.
http://tidarandinn.is/efstaleiti-5
Logos á ELL seríuna.
Það sem mér finnst samt yfirgengilegt er að menn komast upp með að ljúga hverju sem er í fjölmiðla og af því eru aldrei neinir refsiverðir eftirmálar.
Logos sf er annað félag sem virðist hafa sankað að sér fjölda ehf félaga. Nafninu var breytt í Logos slf og hefur það tekið við öllum rekstri, eignum og skuldum Logos sf þann 30. október 2008. Tilgangurinn er „Rekstur lögfræðiskrifstofu og skyldur atvinnurekstur.“ Þetta félag á yfir 100 félög sem nefnd eru ELL 26 ehf – ELL 191 ehf. Alltaf með sömu stjórnarmönnum þ.e. Erlendur Gíslason, kt. 111266-3369 og Gunnar Sturluson, kt. 170767-4119.
Hvað er lögfræðistofa að gera með rekstur yfir 100 félaga sem hafa sama tilgang???
http://www.malefnin.com/ib/lofiversion/index.php/t111359.html
Hvað getur almenningur gert til að stoppa þessi ömulegheit?
Nú er ljóst að skipuninni verður ekki breytt.
…
Leiðari í AMX birtist 17. mars 2009 klukkan 13:56
Þola dómsniðurstöður ekki annað en skipan Logos sem skiptastjóra?
Fleiri leiðarar ›
Leiðari eftir Óla Björn Kárason
Erlendur Gíslason hrl. og einn eigandi lögfræðiskrifstofunnar Logos, hefur verið skipaður skiptastjóri í þrotabúi Baugs Group hf. Að líkindum er um að ræða stærsta þrotabú íslenskrar viðskiptasögu. Öll skynsamleg rök hníga hins vegar að því að Erlendur segi sig frá verkefninu.
Eins og komið hefur fram í fréttum hér á AMX og víðar, eru tengsl á milli lögmannsstofunnar Logos og Baugs Group, á milli lögmanna stofunnar og helstu eigenda Baugs, með beinum og óbeinum hætti. Tengslin eru með þeim hætti að alltaf verður uppi tortryggni um öll störf Erlends Gíslasonar.
Spurningin um hæfi og vanhæfi Erlends Gíslasonar sem skiptastjóra hefur ekkert með getu eða heiðarleik hans að gera. En sem dugandi og heiðarlegur lögmaður getur hann ekki setið undir þeim grun, að vegna tengsla lögmannsstofunnar, þar sem hann er meðeigandi, geti hann ekki unnið af heiðarleika og sanngirni sem bústjóri Baugs Group. Ekkert er verra fyrir góða lögmenn en að sanngirni og heiðarleiki þeirra sé dreginn í efa. Vandi bústjóra Baugs Group er sá að útilokað er fyrir hann að vinna að málum þrotabúsins öðruvísi en að alltaf vakni upp grunsemdir um að aðrir hagsmunir en kröfuhafa ráði þar för. Fyrir heiðarlegan lögmann eins og Erlend er slíkt óþolandi og þess vegna hlýtur hann að segja sig frá starfi bústjóra.
Fátt er mikilvægara á tímum tortryggni en ásýnd. Engum kemur til hugar að halda öðru fram en að Erlendur Gíslason muni vinna starf sitt sem bústjóri þrotabús Baugs Group með öðrum hætti en af heilindum. En það breytir því ekki að tengsl lögmannsstofu hans við helstu eigendur þrotabúsins munu alltaf verða til þess að tortryggni ræður för. Og við þurfum ekki á slíku að halda á þessum tímum. Ekki verður öðru trúað en að Erlendur muni segja af sér af þessum ástæðum einum.
Hitt er svo annað að skipan lögmanns og eins eiganda lögmannsstofu sem beint og óbeint hefur unnið fyrir Baug og helstu eigendur fyrirtækisins, vekur upp spurningar um það hvort Héraðsdómur Reykjavíkur sé í jarðsambandi. Það er með öllu óskiljanlegt að héraðsdómur skuli skipa skiptastjóra með þeim hætti sem gert var yfir þrotabúi Baugs Group. Annað hvort eru dómarar ekki í neinum tengslum í raunveruleikann eða þá að skipan dómara ræðst af sögulegum ákvörðunum dómstóla, sem ekki þola dagsins ljós.
Margt skylt með líkum.
…
Vísir, 17. mar. 2009 11:00
Skiptastjóri Baugs skráði húsið á konuna rétt eftir hrun
Erlendur Gíslason, lögmaður á Logos og nýskipaður skiptastjóri þrotabús Baugs, skráði einbýlishús sitt á Seltjarnarnesi á eiginkonu sína Kristjönu Skúladóttur 10. nóvember síðastliðinn. Þau höfðu þá verið skráð saman fyrir húsinu í hartnær tíu ár eftir því sem fram kemur hjá Fasteignamati ríkisins.
Erlendur og Kristjana keyptu einbýlishúsið að Bollagörðum 24 í júnímánuði 1998. Ekki hefur náðst í Erlend Gíslason þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Erlendur er ekki eini Íslendingurinn sem skráð hefur hús sitt á eiginkonu sína á þeim mánuðum sem liðnir eru frá bankahruninu. Sjö Kaupþingsforkólfar skráðu hús sín á eiginkonur sínar, bæði rétt fyrir og eftir bankahrunið. Forstjórar á borð við Sigurð Valtýsson og Erlend Hjaltason hjá Exista gerðu slíkt hið sama sem og Matthias Johannessen, fjármálastjóri Salt Investments og nágrannni Erlends Gíslasonar í Bollagörðum.
Já og ekki dettur nokkrum í hug að eitthvað sé á baki við það. Eru það hugsanlega „kúlulánin“ sem fengust til kaupa á hlutabréfunum í bankanum sem áttu auðvitað að gera þessa aðila „moldríka“ á kostnað okkur hinna.
Þetta er auðvitað ekkert annað en fjársvik. Starfsmenn á golfinu í bönkunum höfði reglur um útlán – og sættu ströngu eftirlitu um það – en starfsmenn á hæðinni fyrir ofan – lánuðu milljarða án trygginga.
Nú allt er þetta í lagi á hinu litla Íslandi – þar sem ´Sjálfstæðisflokkurinn hefur veriðvið völd í 18 ár.
Er ekki allt í himna lagi?
Breyta
Innskráning
Gleymt lykilorð
Nýskráning
Staðfestingarkóði