Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
26.11 2008 - 30 ummæli »

Pizza á leiðinni

Það var salat í matinn í gærkvöldi. Sumir voru greinilega ekki saddir.

Seinna um kvöldið valhoppaði Kári inn í stofuna, brosandi út að eyrum.

Ég spurði hvers vegna hann væri svo glaður.

„Ég hlakka svo til að fara í skólann á morgun,“ svaraði hann.

Hann settist í sófann og bætti við, nokkrum andartökum síðar, af því hann er frekar hrekklaus eins og pabbi sinn.

„Pizzan kemur á eftir.“

Kári hafði tekið síma pabba síns traustataki, farið í tölvuna og fundið símanúmerið á pizzastað, hringt og pantað:

1 sextántommu pizzu með skinku og pepperoni.

1 sextántommu pizzu með pepperoni og sveppum.

3 lítra af Sprite.

Einhvern veginn hafði sex ára barninu, sem er með mjög barnalega rödd, tekist þetta. Hann hafði gefið upp rétt símanúmer og húsnúmer, meira að segja gætt þess að bæta við „101 Reykjavík“.

Hann hafði áætlað einn lítra af Sprite á mann, einn handa sér, einn handa mömmu, einn handa pabba.

Það var grátur og gnístran tanna þegar mamma hans hringdi á pizzastaðinn og afpantaði.

En samt ekki lengi.

30 ummæli

Rita ummæli

Móvinda
26.11 2008 kl.22:30

Mamma kemur í bæjinn bráðum og borgar skuldina mína… :-)

Hólmfríður Gestsd.
26.11 2008 kl.22:32

Bwahahhahaha þessi börn eru yndisleg!

Einar
26.11 2008 kl.22:32

Heppinn að hafa náð að afpanta,
ég mundi giska á að þetta hefði kostað ca. 6-8 þús kall :)

Flott hjá guttanum að vera svona framtakssamur, börn eru best :)

Anna María
26.11 2008 kl.22:32

Mér skilst að sönnum karlmönnum þyki salat ekki vera matur.

Jóhann
26.11 2008 kl.22:34

Fékk Kári salat?

Ógnartímar krefjast örþrifaráða!

Flottur!

joð
26.11 2008 kl.22:34

Þarna er lítill snillingur. Það er ljótt að eyðileggja svona snjalla áætlun og framkvæmd.

anna benkovic
26.11 2008 kl.22:35

hihihi….þið eigið greindan dreng! (til hamingju!!:-))

Gunnr
26.11 2008 kl.22:35

Já ótrúlegt hvað þetta smáfólk getur bjargað sér. Foreldrar mínir sem eru að nálgast sjötugt geta vart notað fjarstýringuna á sjónvarpinu eða tölvumús, Þetta geta krakkarnir auðveldlega. Það er ótrúlega auðvelt að vanmeta þau. Þau taka einnig til sín mun meiri upplýsingar en maður gerir sér grein fyrir.

Eg vona samt að flestir nái að komast í gegnum þessa krepputíma án þess að það bitni á fjölskyldu og börnum. Það eru önnur æðri gildi sem skpta máli. Við færumst kannski alveg aftur til 1990 í lífskjörum það var ekkert svo slæmur tími.

Móvinda
26.11 2008 kl.22:36

Sannur Íslendingur hann sonur þinn – enterprising og alles. Mér hefur oft dottið í hug að við ættum að hætta að kalla okkur íslendinga – frekar „enterprisingur“ – við þrífumst nefnilega ekki nema að sýna frumkvæði :-)

Þór Jóhannesson
26.11 2008 kl.22:38

Hihi, mikið er hann Kári nú skemmtilegur drengur.

Vesturbæingur
26.11 2008 kl.22:47

Kári klári, brilliant pöntun og póstnúmerið flott.

Mummi Meinhorn
26.11 2008 kl.22:51

Vertu duglegur að borða salat Egill. Hef ekki efni á öllu stærra sjónvarpi!

Gunnar Skúli Ármannsson
26.11 2008 kl.22:53

Íslenska kreppan í hnotskurn, drengurinn verður sannur útrásarvíkingur.

arnarhelgi
26.11 2008 kl.23:06

Já , Ráðamenn virðast að minnsta kosti halda að við getum lifað af Orða-Salatinu einu saman.

Henrý
26.11 2008 kl.23:08

Haha. Pottormur. :-)

Ég var á svipuðum aldri, sennilega nokkrum árum eldri, þegar ég pantaði mína fyrstu pizzu. Þá hafði ég móðgast við nágranna okkur af einhverjum orsökum og pantaði handa honum sjávarréttapizzu. Sem var það versta sem ég hélt að nokkur gæti gert annarri manneskju.

Svo var ég svo spenntur yfir glæpnum að allt komst upp, og ég þurfti að hringja aftur og afsaka hrekkinn. Mjög skömmustulegur.

Jakobína
26.11 2008 kl.23:18

Hann á eftir að taka völdin, bíddu bara. Þetta er fyrsta skrefið

Hörður Mar Karlsson
26.11 2008 kl.23:36

Eg hefði fundist þetta það gott að eg hefði latið þetta eftir honum.

ASE
27.11 2008 kl.00:40

Þetta er yndisleg saga af frábærum dreng. Þú ert ríkur maður Egill.

Sem kona, þá tek undir með þeim öðrum (konum?) sem vita að þýðir ekki að bjóða sönnum karlmönnum upp á bara „gras“. Svo þið hjónin vitið alveg hvern skal skamma!

Til hamingju með að vera að ala upp sannan íslenskan karlmann (en ekki metró kjánalegan útrásarvíking ;-)

RT
27.11 2008 kl.00:44

Þessi sonur ykkar er algjör gullmoli.
Svona sögur sýna manni betur en annað hvar verðmætin liggja.

Hólmfríður Bjarnadóttir
27.11 2008 kl.00:52

Ég get alveg séð tvo afkomendur mína gera svona efir rúm 2 ár. Eru núna þriggja og hálfs og hafa fraumkvæðið í lagi. Tek það fram að þetta eru ekki tvíburar.

joð
27.11 2008 kl.01:07

Láta orminn taka eins og eitt sett í Silfrinu með jafnöldrum og fjalla um hvernig kreppan horfir við þeim. ( Fyrir Kára – ónýt pizzu veisla.)

Walter
27.11 2008 kl.02:30

Þetta var frábært hjá honum :) snillingur á ferð hehe.

Þórður J.
27.11 2008 kl.04:17

Tek undir með JOÐ. Það gæti verið forvitnilegur vinkill…

… en ætli Kári bíði bara ekki eftir bjölluhringingunni næst ;)

Arinbjörn kúld
27.11 2008 kl.06:44

Snild, efnilegur piltur, Kári

Þórður B. Sigurðsson
27.11 2008 kl.08:19

Talandi um Pizzur:

,,Ég vil líkja Geir við móður sem er að halda barnaafmæli.

Móðirin er að baka pizzu ofan í krakkaskarann sem eru í þessu tilfelli þegnar landsins. Krakkarnir eru að sjálfsögðu óþolinmóðir, vilja fá að borða og skilja ekki af hverju pizzan er ekki tilbúin. Þau eru svöng núna og vilja að þeirri tilfinningu ljúki strax.

Móðirin veit að pizzan er ekki góð nema að hún fari í gegnum ofninn. Ofninn er tíminn sem björgunarpakki ríkisstjórnarinnar þarf á að halda. Börnin hins vegar eru með mikinn hávaða og eru sífellt að trufla mömmu gömlu sem reynir eftir fremsta megni að klára pizzuna á sem skemmstum tíma en einnig að gera hana eins góða og mögulegt er.

Þegar mamma er að leggja lokahönd á pizzuna kemur pabbi inn í eldhús. Pabbi heimtar að maturinn verði borin á borð og skilur ekkert í því hvernig stendur á þessum töfum. Pabbi er nýbúinn að horfa á Jamie Oliver þátt á stöð 2 og telur sig fullfæran um að redda málunum og vinna sér inn stig í leiðinni hjá börnunum. Mamma veit að pabbi er ekki hæfur í eldhúsinu enda hefur hún búið með honum til fjölda ára. Það skilja börnin ekki sem snúast fljótt á sveif með pabba.

Saman byrja þau að kyrja í eldhúsinu: „Við erum svöng, við viljum pizzu“.

Ef móðirin myndi láta eftir börnunum sem henni þykir óskaplega vænt um og gefa þeim pizzuna óbakaða, þá myndi það einungis veita þeim skammvinna sælu, ef sælu skyldi kallast. Börnin myndu fljótt fá í magann og verða óglatt. Ef pabbi fengi leyfi til þess að klára hálfkláraða pizzuna myndi hún brenna við og börnin myndu verða enn svangari og líða enn verr.

Sýnum þolinmæði börnin góð, pabbi farðu út úr eldhúsinu og leyfðu mömmu að baka pizzuna í friði.“

Færsla skráð á Davíð Inga Magnússon á Facebook síðu stuðningsmanna Geirs H. Haarde

Þórður B. Sigurðsson
27.11 2008 kl.08:22

Talandi um Pizzur.

Geiri
27.11 2008 kl.09:30

Heh, passaðu þig núna Egill því hann lærir af reynslunni, og næst þá færðu kannski ekki að vita af pizzunni fyrr en hún er kominn heim að dyrum. ;)

Almenningur
27.11 2008 kl.11:17

Almenningi þykir sagan skemmtileg. :-)

En er þó hugsi yfir því að tekið skuli hafa verið við símapöntun frá barni. Hugsanlega er einhver ofvöxtur í þjónustulund einhvers, einhversstaðar.

margeir
27.11 2008 kl.11:53

egill passaðu visakortið:-) nei þú þarft þess ekki þetta er strákur:-)

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Leturstærðir

Leit

Aðrir miðlar