Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
19.11 2008 - 32 ummæli »

Eggjum kastað í bíl ráðherra

Ég hef reyndar aldrei skilið hvers vegna ráðherrabílunum er lagt með þessum hætti fyrir framan þinghúsið.

Að því er virðist til að sýna vald ráðherranna, því óbreyttir þingmenn leggja bílum fyrir aftan húsið.

Og oft ólöglega – að því er manni virðist.

Þetta er ekki annað ein enn ein birtingarmynd ráðherrahrokans sem er eins og pest í pólitíkinni hér.

32 ummæli

Rita ummæli

HH
19.11 2008 kl.19:12

Þessi frétt gleður. Meira af þessu. Helvítis skítapakk.

Sölvi
19.11 2008 kl.19:15

Ekki get ég nú sagt að ég vorkenni honum mikið, þurfti ekki einusinni að þrífa bílinn sjálfur ræfillinn. Ætti í raun að skammast sín fyrir að einusinni minnast á þetta á blogginu sínu.

Undrandi
19.11 2008 kl.19:16

Sé sá orðrómur réttur að fullvopnuð víkingasveit hafi verið á laugardaginn í bílageymslu í grennd við Austurvöll meðan á mótmælafundinum stóð má ætla að ráðamenn séu jafnvel farnir að átta sig á þeirri miklu ólgu sem nú er í þjóðfélaginu.
Fyrir mér hljómar þetta eins og yfirvöld hafi beint að óvopnuðu fólki og börnunum sem voru á þessum fundi hlaðinni byssu. Ætli þetta sé satt? Ef svo er þarf bersýnilega að gæta að bílageymslunum næst. Ég hef a.m.k. ekki börn með mér á næsta fund. Stressuð lögregla með vopn er ekki sniðugt fyrirbrigði í svona ástandi. Það gæti einhver slasast. Heyrir víkingasveitin annars ekki undir háttvirtan dómsmálaráðherran.

Kona
19.11 2008 kl.19:20

Ég held hann megi bara þakka fyrir að þetta voru egg en ekki eitthvað þyngra.

Garibaldi
19.11 2008 kl.19:30

Ráðherrabílarnir eru líka hafðir í hægagangi svo þeir séu „heitir“ þegar ráðherrar setjast inn í leðursætin.

Kannski einhver smelli mynd af því með símanum og skelli á jútjúb?

Lísa í Glæpalandi
19.11 2008 kl.19:32

„Ráðherrabílar keyra yfir fjöregg landsmanna!“

Lísa
19.11 2008 kl.19:36

Orð BB á blogginu hans undirstrika hroka í honum. Ógeðslegt!… ,,Jón Geir, bílstjóri minn, fór á bílnum til að þrífa hann, en þegar ég gekk með Illuga Gunnarssyni alþingismanni út úr skálanum var enginn sjáanlegur við þinghúsið.“ … Bjóst hann við að þær stæði eggjakastarinn og vonaðist eftir eiginhandaráritun Björns?

Hins vegar spurning um að gera Jóni Geir greiða og kasta frekar eggjum í Björn sjálfan næst. Varla lætur hann JG baða sig líka!

Kannski ættu ráðherra landsins að fara að taka strætó, eða í það minnsta keyra sjálfir. Ég vil ómögulega vera að borga undir rassgatið á Birni einkabílstjóra. Reykjavík er nú ekki stór borg!

bbj
19.11 2008 kl.19:37

Var bí bí að væla núna.
Þessi asni ætti að taka strætó í vinnuna.
Ennfremur ætti að halfera laun hans, max 400.000.00 kr.

ag
19.11 2008 kl.19:38

Ég er á móti því að matvæli séu notuð í þessa bjána, miklu nær væri að nota hænsnaskít eða kúamykju !

Garibaldi
19.11 2008 kl.19:41

Brilliant, Lísa, brilliant ;)

Snæbjörn
19.11 2008 kl.20:00

Þetta er byrjun þess sem koma skal óttast ég.

Ef friðsamleg mótmæli hafa engin áhrif mun allt versna.

Dada
19.11 2008 kl.20:04

Útlendir ráðherrar hafa fengið tertur í andlitið á blaðamannafundum og annan ófögnuð verðskuldað jafnt sem óverðskuldað.

Vælutónnin í þessu hjá fullorðnum manninum er ótrúlegur!

Ég held að landsmenn séu búnir að fá upp í kok núna. Þetta leikrit með sameiningu Seðlabanka og Fjármálaeftirlitið er síðasta og fullkomnasta sönnun á því að landið rekur á reiðanum og það er enginn við stjórnvölinn!

Þjóðstjórn núna takk!

J.B
19.11 2008 kl.20:09

Björn var voðalega „spældur“ yfir þessu í Íslandi í dag hjá Sölva, fannst þetta ekki eggjandi aðgerð.

GU
19.11 2008 kl.20:10

Spurning hvaða loforð ríkisstjórnin getur gefið IMF um að ekki verði skipt um ríkisstjórn á næstu mánuðum.

Það er mjög mikil ólga í landinu og því ekkert víst að sama ríkisstjórn sitji eftir nokkra mánuði. Ekki er víst að nýja ríkisstjórnin sé því fylgjandi að borga visa skuldina með mastercard kortinu.

IMF mun gera e-ð til að tryggja að Íslendingar gangi ekki á bak skuldbindinga sinna.

Garibaldi
19.11 2008 kl.20:13

Annars ótækt að heyra hvernig farið er með landbúnaðarafurðir nú til dags.

Meindýraeyðirinn
19.11 2008 kl.20:20

Ég var alltaf að vonast að Sölvi myndi spyrja hann út í Skipan lögreglustjóra suðurnesja! En hann Björn Bjarnason réði aðstoðarríkislögreglustjóra í það embætti! Sigríður Björk Guðjónsdóttir minnir mig! Einhver nóbody en JÁ manneskja! Það er nefnilega með Sjálfstæðisflokkinn að þeir vilji ráðskast með alla sér í hag!

HH
19.11 2008 kl.20:23

Friðsamleg mótmæli skila engu. Björn Bjarnason veit það og glottir út í bæði.

larfur
19.11 2008 kl.20:28

Það er endalaust verið að gefa almenningi langt nef!!
Mótmælin eru ekki að virka í þessari mynd.
Það er bara hlegið og sagt að þetta líði hjá en eitt er hægt að gera sem virkar.Það er að HÆTTA AÐ BORGA með því eru þessir menn þvingaðir til að gera eitthvað. Skammarlegt að ekki hafi tekist að hringa alþingi í dag ef einhver dugur væri í okkur þá hefði verið tífaldur hringur um þessa máttlausu stofnun

HH
19.11 2008 kl.20:37

Hvað er að því að mótmæla með mat?? Er ekki matur mannsins megin??

Ef það skilar því að við fáum fram breytingar, þá er það frábært.

Það er óþarfi að belgja sig út öllum stundum.

Ég er alveg til í að leggja til hliðar hluta af þeim matvælum sem ég kaupi og nota það til að grýta þetta skítapakk.

Ræsisrotturnar fá þá bara minna þann daginn.

Garibaldi
19.11 2008 kl.20:43

Hvað gerist ef IMF segir nei?

Þrymur Sveinsson
19.11 2008 kl.20:45

En hvað þetta er dæmigert fyrir okkur. Hendum eggjum úr launsátri í dauðan hlut. Og látum taka myndir af gérningum. Táknrænt..
Það á að mótmæla með stæl ekki með 10árastrákaflissi sem enginn tekur marká.

Sigurlaug
19.11 2008 kl.21:05

Eggin hafa víst hækkað um 13 % í Bónus -

Skyldi Jón Ásgeir vera að græða á þessum stórhættulegu

eggjaglæpamönnum þessa dagana?

Svo eru þau Hagkaups- Baugs hjónin að stækka við sig,

Nú á að vera opið í Hagkaup allan sólarhringinn í Skeifunni

svo nú geta eggjaglæpamennirnir keypt egg allan sólarhringnn OMG!

skyldi bílstjórinn hans Bjössa vilja vinna næturvinnu við eggjaþrif ?

Legg til að það verði opnuð sérstök eggjarannsóknardeild hjá Ríkislögreglustjóranum, maður veit aldrei hvernig jafn alvarleg brot af
þessu tagi geti þróast í framtíðinni?

Þetta er Alveg Skelfilegt!

Einar Guðjónsson
19.11 2008 kl.21:33

Þetta er meira en hroki.Klárt lögbrot og sýnir auðvitað siðblinduna í hnotskurn.Dómsmálaráðherrann telur ekkert athugavert við að bílstjóri hans sé
ítrekað að brjóta lögin í landinu.Finnst hinsvegar furðulegt sjálfum að einhver annar geri það líka með því að kasta eggjum í “ sinn“ bíl en það er hann þó að BB hafi
umráð yfir bílnum.
kv.

Jón Fyrsti
19.11 2008 kl.21:54

Hverskonar endemis þvæla er þetta. Af hverju ætti flokkur með Davíð (sem nýtur innan við 10% stuðnings sem bankastjóri), Andrés Magnússon (uppskrúfaður misheppnaður bissnessmaður), Bjarna Harðarson (fulltrúa 25% af 6% flokk) osfrv að geta myndað stjórnmálaafl sem náð gæti völdum.
Egill þú missir ögn trúverðugleika með svona kenningum.

Rómverji
19.11 2008 kl.22:02

Dómsmálaráðherra leggur bíl embættisins ólöglega eða lætur það gott heita. Auðvitað. Hann er dómsmálaráðherra.

Þetta subbulið sem er hér við völd er svo heimóttarlegt og hrokafullt að engu tali tekur. Auk þess er það nú heimaskítsmát. Aðhlátursefni um allan heim.

Landsmenn geta því miður ekki hlegið með.

Burt með Geir Haarde og allan hans skríl. Burt með Samfylkinguna!

Kristján Kristinsson
19.11 2008 kl.22:37

Notað var egg-vopn.

pj
19.11 2008 kl.22:49

Rómverji talar fyrir mig!

Mosfeld
19.11 2008 kl.23:41

BB er samur við sig. Þegar hann er spurður um það sem skiptir máli og fjölmiðlamenn eru leita að svörum þá VEIT HANN EKKERT eða ÞAÐ SKIPTIR ENGU MÁLI eða HANN TALAR UM EITTHVAÐ ANNAÐ, ( Í Valhöll er skóli sem þjálfar framtíðarstuttbuxnaliðið í þessum leik) En þegar rætt er um andstæðinganna og eggjakast fer BB á flug, þá fyrst ælir hann einhverju upp úr sér þó sjaldan sé eitthvað vit í því

Þór Jóhannesson
20.11 2008 kl.00:40

Eggjaníðingurinn hefur játað á sig sökina. Hann heitir Jón B. Hólm.

Jón B. Hólm er hetja. Hann sýnir andúð sína á skilvirkan hátt. Hann gengst við gjörðum sínum. Yfirvöld mættu læra af honum – kannski ráða hann sem fagaðila í að skera niður hjá ríkinu, hann skilur a.m.k. bruðlið í einkabílstjórastarfinu.

Tignum þá sem þora en ekki þá sem eru gungur eins og Geir sem þorði ekki öðru en að taka ábyrgð á ICESAVE reikningunum og skuldsetti þannig hvert mannsbarn með 1.4 kg af gulli – eins og hann orðaði það sjálfur fyrir viku.

Langar að lokum að benda á að Björn bloggar um þessa atburði á heimasíðunni sinni bjorn.is en þar leggst hann svo lágt að hann gerir lítið úr stafsetningu hjá manni sem augljóslega er lesblindur – ég sem verðandi íslenskukennari get fullyrt að svo sé.

Björgvin
20.11 2008 kl.00:41

Ég vann eitt sinn þarna við torgið og sá þá oftar en einu sinni saklausa stöðumælaverði vera að sekta ráðherrabílinna fyrir „stöðumælaglæpi“, verðinir voru snarlega stoppaðir af einhverjum virðulegum starfsmönnum alþingis sem sussuðu þeim í burtu.

Sveinn
20.11 2008 kl.05:02

Sammala thvi ad thad er algjor otharfi, svo eg tali nu ekki um taktleysi ad soa matvaelum i thennan vitleysing. Vinur minn erlendur sem hefur upplifad alvoru kreppu sagdi eftir ad hann sa myndband af austurvallarmotmaelunum: „af hvernju er verid ad kasta eggjum, hvers vegna thessu soun? Er ekki kreppa a Islandi?“ Segir kannski meira en morg ord um thad hversu firrt islenska thjodin er ordin og gildismatid i leidinni. Thjodin er allavega ekki alsaklaus af thvi hvernig for. Hvad vard til daemis um thann hugsunarhatt ad safna fyrst fyrir bilnum og kaupa hann svo, er thad kannski allt of fjarstaedukennd hugmynd a Islandi nutimans?

Alli
20.11 2008 kl.11:04

Hve lengi verður J. Edgar Oddsson varinn af forystu sjálfstæðisflokksins?

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

 


Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar