Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
22.10 2008 - 159 ummæli »

Að játa mistök

Steingrímur Hermannsson kunni þá list að játa á sig mistök. Hann var eiginlega snillingur í því.

Stundum finnst fólki ágætt að heyra stjórnmálamenn viðurkenna hreinlega að þeir hafi ekki vitað betur – eða gert vitleysu.

Geir Haarde kann þetta ekki. Hann getur ekki fengið af sér að segja að stefnan sem hann hefur rekið í langan tíma leiddi til ófarnaðar.

Kemur því ekki út úr sér.

Geir vill ekki að verði kosið í vetur. En finnst þjóðinni í lagi að þeir sem bera ábygð á ástandinu sitji áfram?



Mínar stillingar