Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
24.05 2008 - 21 ummæli »

Formenn flokkana í Silfrinu

geir.jpg

Nú um helgina er liðið ár frá því ríkisstjórnin tók við völdum. Þá er líka sendur út síðasti þátturinn af Silfri Egils á þessari vertíð.

Gestir í þættinum verða formenn stjórnmálaflokkanna, Geir H. Haarde, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Guðni Ágústsson og Guðjón A. Kristjánsson.

Þetta verður í fyrsta sinn sem formennirnir hittast í sjónvarpi allra landsmanna síðan í kosningunum síðastliðið vor.

21 ummæli

Rita ummæli

Jón Jónsson
21.05 2008 kl.00:07

Yndislegt. Frábært. Dásamlegt. Hreint úrvals og ábyrgt framúrskarandi fólk. Þessi þáttur verður lengi í minnum hafður.

Oddur Ólafsson
21.05 2008 kl.01:12

Kryddsíld á gamlársdag – verður þetta þá harðfiskur?

pj
21.05 2008 kl.08:10

þá kom að því að Álf-Geir bryti eina af reglum Davíðs! Gat reyndar ekki fundið smærri reglu en……….

Logi Óttarsson
23.05 2008 kl.13:09

Ingibjörg Mun dásama stjórnarsamstarfið og öll vandræði sem aðgerðarleisið hefur valdið hefur verið öðrum að kenna. Geir mun dásama stjórnarsamstarfið og tala um að það hefði ekki verið hægt að sjá þetta fyrir. Svo munu þau halda áfram að gera ekki neitt þótt fyrirtæki og einstaklingar séu að fara á hausinn. Steingrímur mun segja að þetta sé allt því að kenna að það var virkjað og sett upp álver. Guðjón mun tala um niðurskurð á Þorski. Guðni segir dáðleisi. Sanni þið til.

caramba
23.05 2008 kl.13:16

Þú ert iðinn við kolann. Það er byrjað að falla á silfrið. Sömu andlitin, sömu kliskjurnar, sama innantóma þvaðrið. Ertu ekki sjálfur á leið í pólitík? Af hverju eru alvörumenn eins og Guðmundur Gunnarsson aldrei kallaðir til viðtals hjá þér?

pj
23.05 2008 kl.13:29

Álf-Geir mun einnig segja að þetta sé allt saman í himnalagi og í raun engin vandamál sem ekki eru að leysast af sjálfu sér. Svo reikna þau út hagnaðinn af erlenda láninu sem þau fá ekki( líklega vill enginn lána Besta Landi í Heimi).

Þau munu ekki kannast við að byggingabransinn sé að rúlla yfir um. Þau kenna þá byggingabransanum sjálfum um.

Svo munu þau ekki kannast við að 25.000 Íslendingar séu á leiðinni í gjaldþrot. Þau kenna þá 25.000 Íslendingum um að kunna ekki að haga málum sínum sjálf.

Þau munu segja okkur að hvalveiðar skipti ekki máli, undarlegar ráðningar séu ekki til umræðu lengur, Ísland sé með bestu veikustu mynt í heimi sem sé á leiðinni út í stað evru en þó alls ekki því þessi mynt sé stöðug og verði framtíðarmynt Íslands.

Svo munu þau segja okkur að við séum (ekki) á leiðinni í Evrópusambandið. Það hafi engin áhrif á sjálfstæði þjóðarinnar þó augljóst megi telja að við missum svo mikið af sjálfstæði okkar að innganga komi ekki til greina.

Ég ætla að sjá til hvort ég nenni að horfa en þó ekki,,,,,,,,,,

Systa
23.05 2008 kl.14:08

Já, satt að segja finnst mér ég vera búin að heyra allar stjórnmálaflokkaformannaklisjurnar (langt orð!) einum of oft.

Ég ætla frekar að sofa út á sunnudaginn – til kl. 13.45.

Sorrý Egill!

Omar
23.05 2008 kl.14:48

ég ætla að gefa þessu séns og reyna að horfa, vonandi að þú verðir með einhverjar alvöru spurningar, og látir þetta fólk ekki komast upp með að svara illa eða óskiljanlega, vonandi verður þetta eitthvað annað en enn einn þátturinn sem hljómar eins og rispuð plata…..

Ljónsmakkinn
23.05 2008 kl.15:48

Þú meinar að það sé eitt ár frá því að “ríkisstjórnirnar” tóku við völdum?

ee
23.05 2008 kl.15:57

Til Ljonsmakkinn: Right on……………….well, what we know is there is not one government in Iceland…..are they two, or do you think they may be more…!

Egill Helgason
23.05 2008 kl.16:02

Hvað hefur Guðmundur Gunnars verið oft í Silfrinu í vetur?

Allavega tvisvar.

ÞA
23.05 2008 kl.16:59

Viltu spyrja heilbrigðisráðherra hvort honum finnist allt í lagi að 20 ungar konur hafi látist af ofneyslu eyturlyfja frá börnum sínum því það er ekki boðið upp á sannfærandi úrræði hér.
Hvað hefði honum fundist ef þær hefðu dáið í bílslysum eða verið myrtar – hafði honum fundist það alvarlegar ?
Það skal engin segja mér að heilbrigðisráðherra hafi ekki vitað af þessu.

Sófisti
23.05 2008 kl.23:52

Mér þætti gaman ef þú kæmir aðeins inn á vantraust almennings á Alþingi, og athugaðir hvaða skoðanir eða bjargir formennirnir hafa í huga. Sjálfur missti ég trúna þegar ég frétti af hinum frægu útborgunum til stjórnmálaflokka. Eftirlaunafrumvarpið og aðstoðarmannafrumvarpið bættu heldur ekki úr skák. En allavega, hvað hafa menn hugsað sér að gera til að endurvinna sér traust og bæta kjörsókn? Það vildi ég allavega vita.

Oddur Ólafsson
24.05 2008 kl.20:16

Þetta verður allt að vera á léttu nótunum.

Geir – finnst þér stundum að varaformaðurinn þinn sé í Samfylkingunni? Er ekki erfitt að vinna með þessu fjölmiðlaglaða fólki í samstarfsflokknum?

Ingibjörg – geturðu úskýrt fyrir okkur helstu línurnar í flokknum, þ.e. hverjir eru í stjórn, og hverjir í stjórnarandstöðu, eða veistu það kannski ekki alltaf sjálf?

Guðjón – hvert verður næsta popúlista málið sem þinn flokkur getur gert að sínu?

Guðni – má ekki leggja Framsókn niður?

Steingrímur – ertu feginn að vera ekki í stjórn?

Eiríkur S.
25.05 2008 kl.02:17

Sammála.

Rómverji
25.05 2008 kl.02:59

Kæri Egill.
Þú mátt alveg birta aftur athugsemd mína frá því um daginn, sem gerð var við svipaða tilkynningu um formennina í Silfrinu.

Egill Helgason
25.05 2008 kl.08:47

Hún er týnd, en þú mátt birta hana aftur Rómverji.

Ari
25.05 2008 kl.12:50

Slökkti á sjónvarpinu rétt í þessu, þetta fólk er í ákv. hlutverkaleik, með og á móti, og svo fyrirsjáanlegt að það tekur því ekki að horfa á þetta. : /

Ef Guðni væri í stjórninni ennþá væri hann að tala um hvað allt er æðislegt en hann er í hlutverki stjórnarandstöðu núna og því m. allt aðra skoðun.

Rómverji
25.05 2008 kl.14:14

Allir formennirnir – nema e.t.v. Steingrímur J. Sigfússon – ætla að hnoða almenningi smjörklípu að sleikja í stað þess að afnema eftirlaunaósómann með frumvarpi Valgerðar Bjarnadóttur.

Að halda því fram að almenningi hafi helst sviðið að menn gætu verið í fullu starfi hjá hinum opinbera og jafnframt þegið eftirlaun, það er rangt. Þessi blekking hefur verið reynd áður – og formaður Samfylkingarinnar ætlar nú að fá formenn allra flokka til að taka sig saman um að blekkja almenning í eftirlaunamálinu með þessu sama trikki. Skammarlegt. Þvílíkur formaður jafnaðarmanna!

“Hin mikla smjörklípa
Þegar búið var að hækka eftirlaunin sem raun bar vitni rak fólk allt í einu augun í það þeir sem höfðu unnið sér rétt til eftirlauna mega taka þau, þó svo þeir eða þær séu enn í starfi. Eins og Pétur Blöndal, alþingismaður segir, það hefur alltaf verið svoleiðis. Það hafði hins vegar aldrei vakið athygli fyrr en núna. Ég velti því fyrir mér hvers vegna það vekur athygli núna, ég held að ein ástæðan sé sú að það þóknist ráðamönnum. Ég held að það sé gamla góða smjörklípuaðferðin, stjórnunarstíllinn sem kannski mætti kenna við Arnarhólinn, höfundurinn er alltaf einhvers staðar nálægt honum.

Svo virðist sem tvær ágætar flokksystur mínar hafi fallið fyrir þessari mikilvirku stjórnunaraðferð. Allavega las ég um það í blöðunum um daginn að þær hyggist leggja fram frumvarp til breytinga á eftirlaunafumvarpinu.

Breytingarnar snúa að því eftir því sem ég fæ best skilið að menn megi ekki taka eftirlaun sem þeir öðlast samkvæmt frumvarpinu ef þeir eru í störfum hjá ríkinu. En hneykslið snýst ekkert um það. Hneykslið er að eftirlaun ráðamanna, ráðherra og þingmanna (og hæstaréttardómara sem bætt var í hópinn – líklega sem smáskammtasmjörklíputrikki) eru í öðru sólkerfi en við hin. Það er þessu sem þarf að breyta en ekki hvenær hinir útvöldu byrja að notfæra sér þessi réttindi sem þeir hafa skammtað sér með ólögum.”

http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?radnr=1112177

Grímur geitskör
25.05 2008 kl.17:32

Ég ætlaði að horfa aftur á Netinu á formann Frjálslynda flokksins sprikla í lygavef sínum í “Stóra Akranesmálinu”, en því miður er einmitt klippt á upptökuna þegar aumingja Gauji er um það bil að endanlega binda tungunu í rembihnút um eigin höfuð.

Er hægt að laga þetta?

Stefán
25.05 2008 kl.20:47

Er nokkur ástæða til þess!?

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

 


Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar