Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
14.04 2008 - 6 ummæli »

Jafnvægi og framfarir

Fyrir síðustu kosningar lét Samfylkingin gera bækling um efnahagsmál sem nefndist Jafnvægi og framfarir. Aðalhöfundur hans var Jón Sigurðsson, fyrrverandi Seðlabankastjóri og viðskiptaráðherra.

Í bæklingnum stóð meðal annars:

„Hættan er sú að Ísland missi trúverðugleika á alþjóðlegum fjármálamörkuðum,
en þá væri voðinn vís með hækkandi vaxtaálagi, gengisfalli og verðbólgugusu.“

Þetta er nákvæmlega það sem hefur gerst núna. Samfylkingin hefur ekki haft langan tíma í ríkisstjórn, en hún hefði kannski mátt læra efni þessa rits betur áður en hún fór inn í stjórnarráðið. Hefði ekki einmitt þurft að mynda ríkisstjórn um það markmið að koma í veg fyrir að svona gerðist?

Það var annars ekki almennur fögnuður með þetta rit. Mogginn taldi að þjóðinni stæði til boða að halda áfram á fylleríinu og skrifaði að þetta væri:

„…augljóslega samdráttarstefna og á að þjóna þeim tilgangi að bremsa af þann mikla hagvöxt, sem verið hefur í landinu“.

6 ummæli

Rita ummæli

Alex Björn
14.04 2008 kl.15:23

Sæll Egill

Ný ríkisstjórn hefur haft mikið meira en nægan tíma til þess að bregðast við. Það eina sem kemur frá þeim er að betra sé að gera ekki neitt en að gera eitthvað vitlaust.

Svona er þotuliðið vitlaust.

Egill Helgason
14.04 2008 kl.15:31

Jú jú, en sökin liggur samt frekar hjá ríkisstjórnum sem á undan komu.

Að sumu leyti er spurning hvort Samfylkingin hefði ekki átt að láta Framsókn sitja í súpunni áfram.

Rómverji
14.04 2008 kl.16:19

„Að sumu leyti er spurning hvort Samfylkingin hefði ekki átt að láta Framsókn sitja í súpunni áfram.“

Jú, en þá hefði pólitískt líf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur verið úti. Að minnsta kosti leit út fyrir það eftir síðustu alþingiskosningar og fylgistap Samfylkingarinnnar.

Geir hjálpaði henni á fætur – og setti skilmálana.

Alex Björn
14.04 2008 kl.16:22

Sæll Egill

„láta Framsókn sitja í súpunni áfram“ Við verðum að vera ósammála þarna. Ég tel að um meiri aðgerðir væru núna í gangi ef Framsókn væri í stjórn. Það er mín skoðun og reyndar þarf ekki mikið til, því ríkisstjórnin er ekki að gera neitt.

Ég hef aldrei verið sammála Steingrími Joð og hvað þá í efnahagsumræðunni en guð hvað það var rétt hjá honum að því lengur sem við bíðum með aðgerðir, því dýrari verða þær.

Aðgerða er þörf og ég vona að við séum sammála um það?

Þráinn Bertelsson
14.04 2008 kl.16:30

Sennilega má rekja orsakir núverandi efnahagsástands til fyrri ríkisstjórna allt aftur til Jóns Baldvins og Jóns þjóðhaga – en til þess þarf mikla langrækni.
Þótt framsóknarmenn séu flúnir til fjalla reika þeir Davíð og Geir báðir ennþá um á vettvangi brotsins – og fingraförin þeirra segja sína sögu.

ÞÍR
14.04 2008 kl.18:03

Síðasta stýrivaxtahækkun sýnir náttúrulega einlægann brotavilja.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

 


Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar