Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
36 ummæli
Rita ummæli31.01 2008 kl.19:32
Slóð
Allt er þetta spurning um aðstöðu og bræðralag, að standa saman um gottgjörelsi sjálfum sér til handa. Þeir sem skammta Bjarna Ármannsyni vita að þeim sjálfum mun skammtað.
Þó kemst þetta ekki í hálfkvisti við samansúrrað löggjafar- og framkvæmdavald. Misnotkun kjörinna fulltrúa á umboðsvaldi sínu:
http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?radnr=1112177
http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?radnr=1185006
31.01 2008 kl.19:52
Slóð
Er þessi Lárus Welding mikill stórgrosser? Þurfti virkilega að borga honum 300 kúlur, bara fyrir að þiggja starfið? Það þurfti nú 5-600 bara til að losna við hinn úr bankanaum.
Þetta samt gamla tuggann, enginn gerir neitt. Eini maðurinn sem gerði eitthvað í málunum og var tekið eftir var þegar Davíð Oddsson tæmdi bankabókina sína þegar honum ofbauð græðgin. Er ekki hægt að fá þann ágæta mann aftur að stjórnun landsins? Hann er einfaldlega allt of hæfileikamikill og allt of ungur til að hætta. Manni lýst ekkert á þetta eins og staðan er í dag.
31.01 2008 kl.19:53
Slóð
Ekkert að þessu. Það er heldur ekki eins og þetta sé sjálftaka hjá honum, honum eru boðnar þessar milljónir af stjórn bankans.
31.01 2008 kl.20:13
Slóð
Mér hefur alltaf fundust þú sveigast frekar til hægri en vinstri í skrifum þín sem og orðum. Ég hef greinilega eitthvað misskilið þig.
31.01 2008 kl.20:21
Slóð
Satt er það Egill satt er það!
31.01 2008 kl.20:51
Slóð
Hafa þeir ekki líka fengið borgað fyrir að selja út lykilnúmer kúnnanna?
31.01 2008 kl.20:58
Slóð
Er hægt að talla um spillingu þegar hið opinbera á ekki í hlut ?, , , , jújú, kannski leiðinlegt fyrir hluthafa Glitnis að standa undir borgunum fyrir þessa menn. En samt.
31.01 2008 kl.21:01
Slóð
Auðvitað er þetta spilling, en þetta er kapítalisminn. Getur einhver nefnt “alternative”?
Daniel Vasella, CEO lyfjarisans Novartis í Sviss, var með 22,3 milljónir Evra í árslaun 2006. Það þýðir mánaðarlaun ISK 178 milljónir. En þetta á eftir að breytast, þær raddir sem vilja setja þak á spillinguna verða háværari. Ísl. fjölmiðlar skrifa hinsvegar of mikið um háu launin og gróðan. Það er ekki lengur hægt að opna blað, hversu merkilegt eða ómerkilegt það er, allstaðar blasa við milljarða upphæðirnar. Þetta er kannski spennandi fyrir Reykjavíkur skrílinn, þar sem hann dansar í kringum gullkálfinn, en fyrir okkur út á landsbyggðinni væri margt fréttnæmar.
31.01 2008 kl.21:01
Slóð
Verð nú að taka undir með inga, hvar er spillingin í þessu? Er þetta ekki gert fyrir opnum tjöldum?
31.01 2008 kl.21:02
Slóð
Það er stórkostlega frumleg tillaga að fá Davíð Oddsson til þess að kveða niður spillingu. Það mætti eins fá Össur Skarphéðinsson til þess, fyrst menn eru að reyna að vera fyndnir.
31.01 2008 kl.21:10
Slóð
Launaskrið! Hvaða launaskrið?
Hvernig er með samninga almennum vinnumarkaði…eru þeir ekki lausir?
Ef að raunveruleg samkeppni ríkti á ísl. banka- og fjármálamarkaði, neytendur réðu og ættu raunverulega valkosti, hefðu þeir einfaldlega ekki látið bjóða sér þetta, tekið út spariféð sitt og flutt það annað, þess vegna Virgin Northern Rock Newcastle Brown Ale…
En þvi er ekki að heilsa fáokuninni, vill ekki kalla hana keppni, og mun varla breytast fyrr en með raunverulegri samkeppni um aurana utan frá!
31.01 2008 kl.21:31
Slóð
Það er varla hægt að flokka þetta sem spillingu. Hvar er pólitíkusinn sem var veirð að umbuna fyrir að taka ákvörðun borgunarmanni sínum í vil?
Það má blöskra og öfundast … en spilling er þetta ekki.
31.01 2008 kl.21:42
Slóð
Hvað er „blöskranlegt“ við það að enkafyrirtæki úti í bæ semji eins og því sýnist við sýna starfsmenn, núverandi, fyrrverandi eða fráfarandi.
31.01 2008 kl.21:43
Slóð
Forstjórar geta semsagt ekki verið spilltir.
Hafa menn ekki fylgst með umræðunni um forstjóragræðgina beggja vegna Atlantsála síðustu ár.
Ég er jafnvel á því að Bjarni Ármannsson sé einn spilltasti maður á Íslandi.
31.01 2008 kl.22:15
Slóð
Þetta er spurning um skilgreiningu er það ekki? … Persónulega hef ég alltaf lagt þann skilning í hugtakið spillingu að hún feli í sér bjögun á ákvarðanatöku opinberra fulltrúa eða kjörinna fulltrúa í vil hverjum þeim sem umbunar honum fyrir viðvikið … með fjárframlögum eða einhverju ámóta.
Samkvæmt þessu myndi ég segja að forstjórar geti ekki verið spilltir. Gráðugir já … spilltir nei.
31.01 2008 kl.22:44
Slóð
Samúel virðist aðeins kannast við “political” spillingu (corruption). En til er nokkuð sem kallast “moral” spilling; corruption of the mind that transcends the moral and ethical dictates and standards.
31.01 2008 kl.22:45
Slóð
Heyrst hefur að Bjarni Ármannsson sé á leið úr landi með pokann sinn!!
31.01 2008 kl.22:52
Slóð
Það er dæmigert að menn reyni að drepa á dreif þessari réttmætu athugsemd Egils með séríslenskum orðhengilshætti. Maður bíður bara eftir því að málvísindamaður kveði sér hljóðs og tjái sig um orðsifjafræðilegan uppruna orðsins „spilling“. Auðvitað er þetta ekkert annað en gjörspilltur heimur – þetta er lítið land og fáir menn sitja við stjórnarborð fyrirtækja af þeirri stærðargráðu sem hér eru til umfjöllunar. Reyndar, ef marka má fréttir en erfiðið við stjórnarsetuna eina svo vel borgað að ætla mætti að í henni felist lífshættulegar þrekraunir og að hver ferð á hvern stjórnarfund taki aldrei minna en fjögur ár. Þetta er spilling og spilling skal það heita.
31.01 2008 kl.22:54
Slóð
Hér er annað sem er blöskranlegt.
Ég veit um stjórnmálamann sem var að láta henda 580 milljónum af skattfé almennings í beinhörðum peningum út um gluggann til einhverra útvalinna gróssera. Þetta var gert sem hluti af pakka sem reiddur er af hendi með samþykki Sjálfstæðisflokksins í skiptum fyrir skammvinn meirihlutavöld í Reykjavíkurborg.
Yfirskinið fyrir peningagjöf þessari var tveir ónýtir húskofar í 101 Reykjavík – með öðrum orðum það var hvorki verið að borga mönnum fyrir að byrja í vinnu, vinna, eða hætta í vinnu.
31.01 2008 kl.23:19
Slóð
Egill, þú ferð nú ansi nálægt meiðyrðum með þessu kommenti. Þú hefur ekkert fyrir þér með þessari staðhæfingu.
31.01 2008 kl.23:22
Slóð
Þarf að segja eitthvað meira en:
REI
og kaupréttarsamninga.
31.01 2008 kl.23:26
Slóð
Fer lítið orðið fyrir siðferði – og þykir ekki verðugt í tímum græðgisvæðingar.
Lengi vöru rökin þau að menn og konur (teljandi á fingrum annarrar), fengju svo há laun fyrir góðan árangur í rekstri. Ég geri þá ráð fyrir að laun þessara ágætu forkólfa lækki, þegar harðnar á dalnum hjá þeim. Ef spilling tengist eingöngu hinu opinbera, ætti hið opinbera þá kannski að hugsa sinn gang áður en það býður upp í þann dans að ,,vernda bankanna“ gagnvart því hruni sem þar blasir við. Það ætti þá kannski einnig að geta sett lagasetningar um laun til stjórnenda, á móti mótvægisaðgerðum gegn hruni á fjármálamörkuðum.
Horfði á yndislegt viðtal við heimsþekktan heimspeking í Kiljunni í gær, og sýnist að þetta sé akkúrat það sem hann var að tala um , þ.e. hrun hugmyndafræðinnar um algerlega frjálsan kapitalisma. Benti þar á yfirburði hin nýja ríkisstýrða efnahagskapitalisma í Kína og víðar í Asíu. Það sem mér þykir alla tíð verst – er sú fádæma snauða og rakalausa framsetning þeirra sem styðja slíkar launagreiðslur. Þætti áhugavert að fá almennileg rök og bið þá ekki um siðferðileg rök, heldur vitræn rök fyrir slíkum greiðslum.
01.02 2008 kl.00:13
Slóð
Þetta eru viðbjóðsleg svín. Flestum finnst það og vonandi að þessir gaurar geri sér grein fyrir því. En þeim er kannski sama því þeir eru siðlausir. Sikkópatar.
01.02 2008 kl.01:06
Slóð
Er nú ekki spurning um að halda til haga þeirri staðreynd varðandi REI að Bjarni fékk engan kaupréttarsamning. Hann ætlaði að setja 1 milljarð af sínu eigin fé í fyrirtækið og var ráðinn stjórnarformaður félagsins. Það voru pólitíkusarnir og forvígismenn orkuveitunnar sem tóku ákvarðanirnar um kaupréttarsamningana og engir aðrir. Ef mönnum líkar illa við launastefnu einkafyrirtækis þá hafa menn það val að annað hvort losa sig við þau hlutabréf sem þeir eiga í því fyrirtæki eða ef þeir eru viðskiptavinir að færa sín viðskipti eitthvað annað. Það virðist öllu erfiðara að losna við spillta pólitíkusa þar sem þeir eru bara kosnir aftur meira að segja þó þeir hafi orðið uppvísir af því að stela almannafé.
01.02 2008 kl.08:29
Slóð
(dóri) ,,Þetta eru viðbjóðsleg svín.“
Það er hárrétt.
En svínin verða að fá öll eplin og alla mjólkina því að það eru þau sem bera ábyrgðina og vaka yfir frelsi samfélagsins.
Ef þau fá ekki 500 milljón epli og annað eins af mjólk þá hætta þau að geta hugsað og hvað boðar það fyrir okkur hin?
Jöfnuðurinn kemur aftur!
01.02 2008 kl.09:48
Slóð
Það er sama hvað þetta er kallað, spilling eða græðgi.
mér finnst ömurlegt sem neitanda að finna ekki fyrir neinni samkeppni hjá bönkunum.
sama hvort þeir heita glitnir eða eitthvað annað allstaðar borgar maður sömu OKUR vextina og þarf að lifa við verðtryggð húsnæðislán.
eða kanski er ég bara svona afbrýðissamur?
01.02 2008 kl.12:59
Slóð
Nú er hún Snorrabúð, les Sigtúnshópurinn, stekkur….
01.02 2008 kl.13:24
Slóð
Það þarf að taka ærlega til í þessari blessuðu fjöliðlastétt. Fara að fækka eitthvað inniskónum á ritstjórnarskrifstofum og göngum. Er þetta einhver hemja að fyrirtæki séu að borga þessi laun?
Sigurjón Þ. Árnason varð eins og hoppandi héri um daginn þegar blaðamaður spurði hann hvað Landsbankinn ætlaði að gera fyrir sína viðskiptavini úr því þeir hefðu náð að kroppa inn svona góðan hagnað.
„Gera, hvað meinarðu gera?“ Maðurinn var greinilega algjörlega óviðbúinn gagnrýnni spurningu. Fjölmiðlar sem telja sig ágenga og gagnrýna þora akkurat engu þegar kemur að stórum auglýsendum sem borga launin þeirra. Gott dæmi um þetta er sjálft hattastatífið Reynir Traustason. Hann getur aldrei stungið á neinum kýlum nema þau séu nógu smá og skipti litlu. árni johnsen og svoleiðis snúruþjófar eru dæmdir, á meðan þessir náungar sem er í sjálftöku virðast komast upp með svo að segja hvað sem er.
„Svona gera menn ekki“ sagði Davíð Odddsson. Nú vantar einhvern til að standa upp og segja það sama. Lítil hætta á að Samfylkingin geri það, þrátt fyrir fróm orð og mikil loforð fyrir kosningar.
Það er eitthvað skrýtið að í þjóðfélaginu í dag. Öll umræða er skrýtin.
01.02 2008 kl.15:11
Slóð
Egill segir…“Ég er jafnvel á því að Bjarni Ármannsson sé einn spilltasti maður á Íslandi.“…
Ég hef líka hugsað þetta, en hressandi að sjá einhvern þora að nefna það!
Bjarni er ekki að skapa neitt, aðeins braska!
01.02 2008 kl.15:58
Slóð
Og launin hjá svínunum lækka ekki þó að gefi á bátinn á mörkuðunum. Bera þeir ekki svo rosalega ábyrgð??
01.02 2008 kl.17:31
Slóð
Ef þessir kverúlantar eru með mjög há laun, þá eiga þeir líka að sæta mikilli ábyrgð. Þannig er það bara. Það er reyndar enginn af þessum náungum orðin „living legend“ í fjármálaheiminum enn. Einu slíku mennirnir eru Jón Ásgeir og Björgólfur. Þeir eru reyndar mest að spila með sína eigin peninga. Þessir bankanáungar eru hins vegar litlir hluthafar og verða að passa sig að fara vel með því fé sem þeim er treyst fyrir.
01.02 2008 kl.19:15
Slóð
Hvaða „ábyrgð“ bar Bjarni Á. í REImálinu?
01.02 2008 kl.22:56
Slóð
Jú, Dóri.
Svínin bera svona rosalega ábyrgð..eða þannig…og svo eru þetta svo duglegir menn a.m.k. að eigin sögn !
- Það bera engir ábyrgð á Íslandi nema smáfuglar sem misstíga sig í lífinu og ábyrgðarmenn á skuldum……þessir aðilar eru hundeltir þar til þeir nást. En ef þú ert orðinn forstjóri eða ráðherra…..þá er siðferði og réttlæti allt loðin og teygjanleg hugtök…og mjög afsttt…“herra Ingi“. Og ef einhver ætlar í mál, þá bíða dómararnir hver öðrum vafasamari í réttarsalnum. Innmúraðir og kreddufullir !!!
- Svo er fólk neytt til að búa við þetta alla helvítis ævina !!!
- Ætli Aula-fylkingin geti gert eitthvað í þessu ??? Nei. Ég þori að veðja ekki. Ingibjörg Sólrún er engin persóna til að ná fram umdeildum málum…Fylgið á Samfylkingunni er þarna því það veit ekkert hvert það á annað að fara !
Hver er annars stefna þessarar undarlegu Sam-Fylkingu ??? Svona í praktískum málum. Og hvar eru allir Íhalds-drengirnir sem töluðu um TRÚVERÐUGLEIKA VANDA hér fyrir nokkrum mánuðum ???
02.02 2008 kl.20:19
Slóð
„Fylgið á Samfylkingunni er þarna því það veit ekkert hvert það á annað að fara !“
Þetta heitir að hitta naglann á höfuðið.
02.06 2008 kl.19:39
Slóð
[...] þar sem mér blöskraði áðan: Silfrið [...]
30.12 2008 kl.16:34
Slóð
Get ekki sed hvad Bjarni Armanns hefur gert i gegnum arin annad en ad ganga i sjodi almenningshlutafelaga med sjalftoku a fe. Stjornir felaganna hafa samthykkt thad gegn vaenum stjornarsetulaunum. Thetta kalla sumir snilld.